Snjókerling særir blygðunarkennd Bandaríkjamanns

Fjölskylda í New Jersey í Bandaríkjunum lagði í það mikla vinnu og natni að skapa líkneski af "Venus frá Mílanó" úr snjó í garðinum. Tiltækið vakti að vonum athygli en ekki voru allir sáttir.

VenusSnjóstyttan mun hafa sært blygðunarkennd einhvers kanans því lögreglan mætti á svæðið og snjókerlinguna varð, gjörið svo vel og ekkert múður, að færa í föt eða brjóta niður að öðrum kosti.

Þeir eru afar viðkvæmir kanarnir fyrir nekt, nakinn mannslíkami má undir engum kringumstæðum sjást í sjónvarpi, en við sama líkama hafa þeir ekkert að athuga sjáist hann alblóðugur sundurskotinn eða niðurbrytjaður á skjánum.

.

Hvernig ætli þessi viðkvæmi kani hefði brugðist við þessu snjólistaverki?

.

snjtyppi_jpg_280x800_q95


mbl.is Þurftu að klæða snjókonuna í föt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun Eyjafjallajökull kjósa... ehh... gjósa á morgun?

Eyjafjallajökull2Það skyldi þá ekki fara svo að Eyjafjallajökull vakni  á morgun af 187 ára svefni sínum og taki þannig, á sinn hátt, þátt í þjóðaratkvæða- greiðslunni.

Fari svo þarf ekki að efa að margir muni túlka slíkt brölt í fjallinu ýmist með eða móti Icesave, ríkisstjórninni og hverju því sem henta þykir.

.


mbl.is Fyrsta háskastigi lýst yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræðið krefst þess að allir nýti kosningarréttinn....alltaf!

Til hvers eru kosningar? Eru þær ekki til þess að kalla fram vilja þjóðarinnar? Á að hundsa kosningar ef einhverjir telja þær óþarfar, eða niðurstaðan liggi ljós fyrir?

Ekki verður hætt við þjóðaratkvæðagreiðsluna úr þessu.  Ef betri samningur er í loftinu ætlar ríkisstjórnin þá að sitja heima í stað þess að hafna verri samningnum?  Hvað gerir ríkisstjórnin ef Icesave verður samþykkt, ætlar hún þá að ganga gegn vilja þjóðarinnar og gera annan samning? 

Þeir sem sitja heima, sitja uppi með það að allir túlka það á þann veg sem þeim best hentar. kosning

Þetta er fyrsta þjóðar- atkvæðagreiðslan í sögu lýðveldisins og stór- merkileg og mikilvæg sem slík.

Hvaða skoðun sem menn hafa á kosningunni eða því sem kosið er um,  þá megum við ekki hundsa kosninguna og sitja heima.

Léleg kosningarþátttaka verður ekki túlkuð á annan hátt en að þjóðin hafi ekki áhuga á beinu lýðræði og verður vatn á myllu þeirra stjórnmálamanna sem eru ekkert alltof hrifnir af rúmu lýðræði.

 

Er það vilji þeirra sem ætla að sitja heima?

  


mbl.is Steingrímur: Ólíklegt að ég kjósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ,æ,æ mikil ósköp

Týndi hlekkurinn er þá áfram týndur, vonandi þó ekki tröllum gefinn.

 


mbl.is Ida ekki týndi hlekkurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnrétti á villigötum!

Samkvæmt lögunum þarf stjórn sem skipuð er 3 eða fleirum að innihalda  að minnsta kosti 40% af hvoru kyni. Getur einhver sagt mér hvernig þetta verður framkvæmt?

Þriggja manna stjórn getur aðeins haft, að mínu viti, eina konu og tvo karla eða öfugt.   Segjum ein kona og tveir karlar, þá er konan 33,33% af stjórninni og karlarnir 66.66%, öldungis ófullnægjandi  segja lögin!

Hvaða líkamsparta er best að karlarnir láni konunni á fundum svo hún nái 40% markinu?   

Erum við ekki komin örlítið út af sporinu. Er þetta til hagsbóta fyrir konur?

Hvað kemur næst í þessu bulli?  

Biðraðir, þarf að kynjajafna í þeim ef þær raðast ekki „rétt“?

Saumaklúbbar, verða konur að skikka karlana með sér svo ekki verði kynjahalli á klúbbunum?

Hvað með hjón sem eiga t.d. 4 stráka, þurfa þau að ættleiða stúlkur inn í röðina til að jafna hlutföllin?

Hvað með aðgreiningu kynjanna á salernum, er ekki hrópandi mismunun þar?


mbl.is Kynjakvóti í stjórnum fyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upp, upp okkar sál.

    Það þarf eitthvað meiriháttar að gerast til að þjóðin sendi ekki frá sér stærsta nei í sögu þjóðarinnar á laugardaginn.  

   Það þýðir ekkert að berja hausnum við steininn, Icesave málinu, eins og það var upp sett, hefur þegar verið hafnað, þótt formlega gerist það ekki fyrr en á laugardag. Fjöldi erlendra fréttamanna er á landinu og gífurlegur áhugi er víða erlendis á málinu, nýtum okkur það í botn, sópum af borðinu og sköpum okkur nýja vígstöðu.

    Undarleg þykir mér afstaða og viðbrögð ríkisstjórnarinnar. Ístað þess að viðurkenna fyrir sjálfri sér staðreynd málsins og hysja upp um sig, nýta þann meðbyr  sem við höfum fengið erlendis og skipuleggja nýja sókn fyrir land og þjóð, þá húkir hún með hor og hland organdi útundir vegg og vorkennir sjálfri sér.

    Ef ríkisstjórnin nær ekki áttum þá hefur hún lokið hlutverki sínu. Hún getur þá allt eins afhent hrunaflokkunum völdin. Það verður þá í höndum Sigmundar og Bjarna að „þrífa“ upp sóðaskapinn, enda eru þeim hægust heimatökin.

 

mbl.is Mikill áhugi erlendra miðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búnaðarþing óstarfhæft.

Samfylkingin mun hafa raskað illa starfsemi B únaðarþings með því að senda ekki fulltrúa í klapplið þingsins. Fleiri andstæðingar bænda hundsuðu þingið svo sem NASA sem sendi ekki fulltrúa í geimferðanefnd Búnaðarsambandsins, ísbirnir sendu heldur ekki...

Getur eitthvað verið kjánalegra?

Fyrir það fyrsta er það umhugsunarvert, svo ekki sé meira sagt, að fangar með langa og alvarlega dóma á bakinu fái eftirlitslaust „leyfi“ til að skreppa í bæinn. Enn undarlega er að þeir haldi sínum vegabréfum og landamærin séu þeim ekki...

Nema hvað?

Er eitthvað annað inn í myndinni en þeir standi við sinn samning og skili varðskipinu fullsmíðuðu?

Össur... ég kratinn, kaus í morgun

Ég rölti mér, kl. hálf tíu í morgun, yfir götuna á skrifstofu Sýsla og kaus utankjörfundar um breytinguna á Icesavelögunum. Ég ætla eftir sem áður að greiða atkvæði á Laugardaginn. En gott að vera búinn að koma atkvæðinu í hús, detti ég dauður niður...

Ekki er allt í mínus!

Eitthvað jákvætt er greinilega að gerast þrátt fyrir alla neikvæðu umræðuna undanfarnar vikur og mánuði. Eitt skref fram fyrir halta þjóð.

Er nokkur von...

... að farseðillinn gildi bara aðra leiðina – varanlega?

Mulningur #7

„Ég þori að veðja að þú manst ekki hvaða dagur er í dag.“ Sagði konan við Hannes manninn sinn þegar hann var að fara út úr dyrunum í vinnuna. „Víst man ég það ,“ svaraði Hannes önugur. „Heldur þú að ég sé algjör...

Útsýnið úr glerhýsi LÍÚ

Ekki verður annað lesið út úr þessu hjali Friðriks Friðrikssonar en allir sem stunda fiskveiðar við Ísland séu ribbaldar og glæpamenn nema þeir sigli undir merkjum LÍÚ, þá skortir víst ekkert á syndleysið og

Er æskilegt að fjölmiðlar fjalli opinskátt um það hver reið hverjum?

Útvarp Saga hefur það fyrir sið að vera með daglega „skoðanakönnun“. Niðurstaða hverrar könnunar er lesin í lok þáttar Péturs Gunnlaugsonar sem er milli 11 og 12, þá er jafnframt ný könnun kynnt til sögunnar. Yfirleitt eru niðurstöður kannana...

Mulningur #6

Skurðlæknir á sjúkrahúsi var á stofugangi. Hann kom að einum sjúklinga sinna, sem hann hafði skorið upp við kviðsliti þrem dögum áður. Læknirinn las manninum pistilinn fyrir að hafa ekki farið fram úr eins og fyrir hann var lagt. „Þú getur trútt um...

Treystir þú mér til þess að treysta því að þú treystir því að ég sé traustsins verður? Eeehh...hvernig var spurningin annars?

Skoðanakönnunum ber að sjálfsögðu að taka með fyrirvara. Með hliðsjón til þess fyrir hverja þær eru gerðar og hvernig spurningum er háttað. Það er hreint undarlegt að aðeins 56% svarenda í þessari könnun Bændasamtakanna séu andvíg hugsanlegri aðild...

Agnes, Agnes hvað hefur þú gert kona?

Á Pressunni er athyglisverð grein eftir Svein Andra Sveinson, stjörnulögfræðing og sjálfstæðismann með meiru, þar sem hann fer hörðum orðum um Agnesi Bragadóttur og meintan skort á trúverðugleika skrifa hennar í Morgunblaðið um útrásarvíkingana og umsvif...

Mulningur #5

Íslendingur var í viðskiptaferð í Sovét- ríkjunum og þurfti að fljúga með Аэрофлот (Aeroflot Sovéska ríkisflugfélagið) á milli borga innanlands. Landanum var ekki rótt, því margar ljótar sögurnar hafði hann...

Hvað er í gangi?

Er ekki hægt að gefa sársvöngum manninum í gogginn?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.