Hvernig er þessum málum háttað hér á landi, sukkar þingið?

Bretland logar nú stafna á milli yfir fjármálaspillingu þingmanna. Einu virðist gilda hvar í flokki menn standa, margir virðast hafa af kappi skarað eld að eigin köku. Engu er líkara en um keppni hafi verið að ræða.

wcHvernig er þessum málum háttað hér á landi? Hvað er greitt hér á landi fyrir þingmenn og ráðherra umfram þingfarar- og ráðherrakaupið?  

Eru greiddir reikningar athugasemdalaust fyrir ýmiskonar útgjöldum sem tengja má þingveru þingmanna?

 Hver man ekki eftir 6 milljóna gullsalerninu, sem var hannað fyrir  Sólveigu Pétursdóttur svo hún þyrfti ekki að setja ráðherrarassinn sinn á sömu setu og aðrir starfsmenn ráðuneytisins.

Hve víða viðgengst svoleiðis bull?

Svör óskast. 


mbl.is Lét skattgreiðendur borga andakofa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að fara í bjarg.....

fuglabjarg2....og hreinsa þar undan fuglinum, vekur upp þá spurningu hvort ekki séu þar á ferðinni skipulagðar fóstureyðingar.

Bara smá pæling.

 
mbl.is Með björg í bú úr Hornbjargi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá, nú fer Kína á hliðina.

dalai_lama2Útlit er fyrir að Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, muni heimsækja Alþingi og jafnvel ná tali af þingnefndum í heimsókn sinni til landsins.

Árni Þór Sigurðsson alþingismaður á allt eins von á því að Kínverjar mótmæli, en þeir stjórni ekki hverjir þingmenn hitta.

Þetta er virðingarvert viðhorf og boðar vonandi breytta tíma, því öllum hlýtur enn að vera í fersku minni þegar Kínverskir leyniþjónustumenn stjórnuðu aðgerðum Íslensku lögreglunar gegn Falun Gong í heimsókn Kínaforseta 2002.

Í augum Kínverskra stjórnvalda er Dalai Lama glæpamaður og  hin mesta ógn, ekki ólíkt og Mahatma Gandhi var Breska heimsveldinu á sínum tíma.

Vertu velkominn til Íslands Dalai Lama. 


mbl.is Dalai Lama til Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímarnir breytast og mennirnir með

Það er undarlegt þegar sagnfræðingar taka upp á því að vilja rita nútíðina og jafnvel framtíðina, sem endurtekningu fortíðar. Þeir eru greinilega fastir í sínu fari.bruni2

Ekki aðeins koma forsetafrúr Frakklands og fara heldur koma, merkilegt nokkuð, páfarnir líka og fara. Sú „staðreynd“  að þær fyrrum forsetafrúr, sem vitnað er til, hafi ekki tjáð sig um páfa getur ómögulega verið einhver forskrift um þau samskipti um ókomna tíð.

Svo kann það líka að hafa eitthvað með það að gera að núverandi páfi varpáfi2 t.d. ekki páfi þegar þessar virðulegu konur voru forsetafrúr.

Fylgjendum páfa hættir til að líta á páfann sem eitthvert óbreytanlegt yfirveraldlegt fyrirbrygði, en eins og sagan sýnir þá eru þeir aðeins röð dauðlegra manna.

„Það sem aldrei hefur gerst áður, getur alltaf gerst aftur.“ Sagði maðurinn. Núverandi páfi hefur á margan hátt gefið á sér færi og látið frá sér fara ýmislegt, sem fyrri páfar gerðu ekki. (!!)

Það er því grunnhyggni að ætla að um hann verði ekki eitthvað sagt, sem ekki er fordæmi fyrir. 

 


mbl.is Gagnrýni Bruni einsdæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær er satt, satt?

Stasi ótti var lengi viðvarandi í vestrinu og engu breytti þótt Þýsku löndin tvö sameinuðust 1990.  

Óttinn við Stasi lifði áfram. 

Lög í Austur-Þýskalandi sem gerðu borgurum nánast skylt að njósna um samborgara sína voru að sjálfsögðu gerð ómerk við sameiningu ríkjanna.

En það var með ólíkindum að lög í Vestur- Þýskalandi skyldu við sameininguna yfirhefja lög Austur-Þýskalands aftur í tímann og gera suma sjálfkrafa að glæpamönnum sem unnu eftir lögum síns lands.

Er þetta ekki frekar hefnd en réttlæti og lýðræði?

Megum við reikna með,  í framtíðinni ef annað kerfi en okkar, sé talið betra, þá verðum við sek um glæpi, höfum við ekki í nútíðinni gert eins og framtíðin bíður okkur að gera.

  
mbl.is Stasi reyndi að fá Merkel til liðs við sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Týndi hlekkurinn fundinn?

Er ekki löngu ljóst að "týndi" hlekkurinn milli Guðs og manna er nýrekinn seðlabankastjóri?

Hann hefur sagt það sjálfur.

Þarf að rannsaka það frekar?

 

 


mbl.is Týndi hlekkurinn fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Datt í það og datt á konuna

Nú þarf ekki frekari vitnana við. Offita er lífshættuleg, ekki seigdrepandi eins og títt hefur verið haldið heldur beinlínis bráðdrepandi. Gerum eitthvað í málinu!

Skal ekki eldur með vatni út rekinn?

Fyrirsögn þessarar fréttar Mbl.is segir ....? ....að það sé fréttaefni að eldur og vatn leiki aðalhlutverkin hjá slökkviliðinu?

Hefur skortur á eistum eitthvað með fasisma að gera?

Nú eru leyndarmál 20. aldar hvert af öðru að upplýsast. Franco einræðisherra Spánar 1939 til 1975 mun, rétt eins og Hitler heitinn, aðeins hafa haft eitt eista. Hvort þessi „skortur á manndómi“ hafi gert þá félaga að fasistum og haft eitthvað...

Mjór er mikils vísir

Þetta er vissulega jákvæð þróun og vísir að breyttum hugsunar- hætti og auknum réttindum kvenna austur þar. En þingið í Kúveit er í sjálfu sér gagnslaust málamynda apparat. Emírinn ræður því sem hann vill ráða, skipar sjálfur „ríkisstjórnina“...

Hvað boðaði Kristur?

Þetta er merkileg könnun og allrar athygli verð. Það er uggvænlegt að tæp 20% kaþólskra og annarra kristinna manna, skuli telja pyntingar réttlætanlegar, hæfi það tilefninu. Það vekur athygli að því trúaðri sem viðkomandi er, því hlynntari er hann...

Brown fer með bænirnar sínar.

Eins og meðfylgjandi mynd sýnir þá hefur „Íslandsvinurinn“ Gordon Brown áttað sig á að nú sé orðið tímabært að fara með faðirvorið. „ .......... Og eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá Íslendingum,...

Er það satt?

Íslenska lagið í Evrópu- söngvakeppninni er tvímælalaust besta lagið sem við höfum sent í keppnina lengi. Ekki finnst mér það samt sigurstranglegt. Við höfum verið gjörn á að yfirskjóta verulega þegar okkar framlag er á ferðinni, sér í lagi ef öðrum...

Snöggir upp, seinir niður.

Að venju fylgjast olíufélögin vel með sé veiking krónunnar yfirvofandi til að geta bæði fljótt og skilmerkilega skilað þeim hækkunum til neytenda. Hjá N1 vonast menn til að olíuverð lækki á upp úr miðju ári. Og þá munu olíufélögin að sjálfsögðu lækka...

Vantaði viðvörun framleiðanda?

Bandaríkjamenn lögsækja allt og alla af minnsta tilefni. Ég fæ ekki betur séð hér sé komið kjörið tækifæri til lögsóknar. Framleiðanda ísskápsins hefur sennilega láðst að setja á skápinn áberandi viðvörunarmiða. „Af heilsufarsástæðum er nauðsynlegt...

Eru þeir hvað harðast berjast fyrir „fortíðarlausa“ hælisleitendur tilbúnir að hýsa þá sjálfir?

Það er umhugsunarvert að einhverjum skuli finnast eðlilegt að fólki, sem logið hefur til um uppruna sinn og hvorki vill eða getur leiðrétt þann málflutning eða tilgang sinn, sé athugasemdarlaust veitt landvist. Ætli þetta sama fólk, sem hvað harðast...

Rökrétt hugsun

Það er bæði rökrétt og skynsamlegt að skattleggja óhollustu hvers konar, verði þeim tekjum beint til heilsuverndar og baráttu gegn óhollu líferni sem kostar skattgreiðendur fé. Þar er tannheilsa barna sannarlega ofarlega á blaði....

Framsókn lifir í fortíðinni

Formanni Framsóknarflokksins finnst það óeðlilegt að þingflokki Framsóknar verði gert að sníða sér stakk eftir vexti. Að hans mati er það eðlilegt að næstminnsti flokkurinn á Alþingi sitji að stærsta þingflokksherbergi þingsins og stærri flokkum gert að...

Neyðin kennir.....

Þótt ég sé andsnúinn reykingum, þá verður að viðurkenna að þetta er snilld. Það verða seint sett lög sem ekki hafa gloppur. . Klikkið á myndina til að stækka hana.

Eru klæða kröfur bara fyrir karla?

Ekki getur það skaðað þótt örlítið sé slakað á sumum siðum og hefðum alþingis, sem margar eru ættaðar nánast aftan úr forneskju. Langtum vægari kröfur virðast vera gerðar til klæðnaðar kvenna á Alþingi, en karla. Þannig hefur það víða verið á Íslandi þar...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband