Er Mogginn aftur orðinn skítlegt flokksblað?

moggiMorgunblaðið kastaði sprengju út í samfélagið í dag. Þar var fullyrt á forsíðu að þrátt fyrir að báðir stjórnarflokkarnir hefðu haft svonefnda fyrningarleið á stefnuskrá sinni ætluðu þeir ekki að ráðast í róttækar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Þetta var samkvæmt traustum heimildum að sögn blaðsins.

Jóhanna Sigurðardóttir hefur borið þessa Morgunblaðs „frétt“ til baka. Enda stenst það ekki skoðun að  nánast samhljóða kosningamál flokkana verði ekki í stjórnarsáttmála og fórnað fyrir ekkert.

  

Nú er spurningin, hvað gekk Mogganum til með þessari  „traustu“ falsfrétt?  Er Mogginn að kasta grímunni og gerast skítlegt flokksblað á ný?  Verða fréttir framvegis skrifaðar með hagsmuni FLOKKSINS að leiðarljósi, fyrst og fremst?

Er milljarðaniðurfelling skulda blaðsins þá beinn styrkur til Sjálfstæðisflokksins þegar allt kemur til alls?

Er Mogginn vísvitandi að kynda undir þeim óróa sem er í þjóðfélaginu, er hann að klappa upp í nýja búsáhaldabyltingu?

Mig minnir sterklega að blaðið hafi ekki verið ýkja hrifið af þannig uppákomum til þessa.

  
mbl.is Fyrningarleið víst farin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræsni páfagarðs

Manni hlýnar alltaf um hjartaræturnar þegar páfagarður boðar bætt siðferði öðrum til handa.

Páfagarður hefur fram að þessu ekki séð ástæðu til yfirlýsinga um líferni og frjálslynt háttalag Berlusconi þótt það hafi verði daglegur fréttamatur.

En þegar frú Berlusconi gagnrýnir hátterni bóndans opinberlega þá vaknar Vatikanið og leggur áherslu á að sýnd sé meiri nærgætni og meira tillit tekið til friðhelgi einkalífsins og allir verði að haga sér af yfirvegun og alvöru!

Hjá kirkjunni eru eðlilega sumir töluvert jafnari en aðrir.MontyPython2

Undanfarin ár hefur því miður ekki verið skortur á miður fallegum dæmum um  mannlega harmleiki þar sem starfsmenn kaþólsku kirkjunnar hafa níðst á sóknarbörnunum.

Brást kirkjan við þeim málum af yfirvegun, alvöru og ábyrgð?

Nei, undantekningarlítið var boðskapurinn lagður til hliðar og öllu til tjaldað að kveða niður og fela óþverrann, meðan stætt var.

Það var að sjálfsögðu aðeins gert til að vernda friðhelgi og einkalíf fórnarlambanna!  

 
mbl.is Páfagarður gagnrýnir Berlusconi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lamar Botox heilann?

Ný rannsókn bendir til þess að efni, sem notuð eru í Botox hrukkumeðferð í andliti, berist til heilans. Því  hefur bandaríska heilbrigðiseftirlitið FDA skerpt á viðvörunum sínum vegna slíkra meðferða.

Þó tilkynnt hafi verið um 600 tilfelli alvarlegra aukaverkana vegna Botox í heiminum hefur fyrirtækið Allergan, sem framleiðir Botox-efnið, gagnrýnt rannsóknina harðlega. Segja þeir niðurstöður hennar stangast á við allar rannsóknir fyrirtækisins. Eðlilega, hvað annað?

botox1Botox-meðferð lamar vöðva og því minnka hrukkur tímabundið en meðferðin leiðir víst ekki alltaf til fegurðarauka.

Skiptir það í raun og veru nokkru máli hvort þessi lamandi efni berast til heilans eða ekki?

Það getur ekki verið að fólk sem lætur sprauta í sig allskonar eiturefnum, til að fela eðlilega öldrun líkamans, hafi yfir höfuð einhverja heilastarfsemi þannig að skaðinn getur ekki verið mikill.

 
mbl.is Botox sagt berast til heila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Ólafur að koma eða fara og þá hvaðan og hvert?

olafur_f_mÓlafur F. Magnússon, gamla íhalds brýnið, hyggst segja sig úr Frjálslynda flokknum enn einu sinni í upphafi borgarstjórnarfundar í dag og ganga til liðs við H lista, sem er verðandi einmenningsframboð undir yfirskriftinni H.H.H. (Hugsýki, hel,hræsni)

Í fljótu bragði er erfitt að kortleggja pólitíska vegferð Ólafs F. Magnússonar, sem hefur eftir persónulegri hentisemi valhoppað milli flokka og flokksbrota undanfarin misseri.

Síðast þegar Ólafur  skreið undir pilsfald Frjálslynda flokksins þá var það við lítinn fögnuð Jóns Magnússonar sem hafði eðlilega takmarkaðan skilning á svona flokkaflakki.

Hver veit nema þeir fjandvinirnir Jón og Ólafur eigi eftir að samflokkast á ný.


mbl.is Ólafur kveður Frjálslynda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft veltir lítil .... ..... ...... .

janet brjóst

Eitt nakið brjóst hefur sett dómskerfi Bandaríkjanna á hliðina.

Dómskerfi sem ekki vílar fyrir sér, ef því er að skipta, að dæma menn til dauða og taka af lífi á ómannúðlegan hátt, það jafnvel þótt oft leiki vafi á að sekt hafi verið sönnuð.

Hér sannast að oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.


mbl.is Hæstiréttur ræðir um bert brjóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er LÍÚ núna orðið á móti kvótasölu?

friðrik1Hvernig getur það hafa farið framhjá mínum fyrrum skipsfélaga Friðriki J. Arngrímssyni, framkvæmdastjóra LÍÚ, að aflaheimildir hafa gengið kaupum og sölum árum saman, verið settar á  uppboð og seldar hæstbjóðanda?

Þetta fyrirkomulag var sett á með framsalsheimild kvótans og hefur verið hornsteinninn í útgerðarhagfræði á Íslandi árum saman og fullyrt að væri alger forsenda þess að hægt væri yfir höfuð að gera út á Íslandi.

Þessi ógn sem Friðrik lýsir svo er fjarri því nein nýjung í Íslenskum sjávarútvegi. LÍÚ hefur ætíð, líkt og Nelson forðum, sett kíkinn fyrir blinda augað, þegar hentar.

  
mbl.is Líkir uppboði afla við byggingastarfsemi í Grafarholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Ofsaveður í rólegheitum?“

Samkvæmt Íslenskri orðabók Menningarsjóðs þýðir orðið „afspyrna“ - ofsaveður. Hljómar eins og rólegheitin séu mönnum vonbrigði og löggunni leiðist. Næturlífið þarf greinilega meira kjöt á beinin.

Egyptar snúast til varnar

Egypsk yfirvöld telja að með slátrun allra svína geti þeir dregið úr eða heft framgang svínaflensunnar. Að mati vísindamanna hefði þetta hugsanlega virkað meðan flensan smitaðist eingöngu í menn úr svínum, en eftir að hún fór að smitast milli manna er...

Gagnslaust „hégóma“ drasl.

Ætli umboðsaðili Hydroxycut hafi skýringu á því hvers vegna þetta „hættulausa“ mix þeirra sé ekki markaðssett alstaðar, skili það sama árangri eða réttara sagt árangursleysi og það skaðlega? Er hægt að treysta framleiðanda sem selur...

Á réttunni eða röngunni?

Ríkisstjórn og Seðlabanki hafa undanfarnar vikur legið undir ámæli að hafa ekki lækkað vexti hraðar og fyrr en forsendur gáfu tilefni til. Nú hefur Benedikt Jóhannesson sakað peningastefnunefnd bankans um að hafa tekið ákvörðun um lækkun vext útfrá...

Félagarnir Silvio, Davíð og Jesú

Það verður ekki frá Silvio Berlusconi tekið að hann er drjúgur með sig. Að eigin sögn nýtur hann meiri vinsælda en aðrir þjóðarleiðtogar, sem hann tilgreinir. En hann sleppir því að nefna hann Davíð okkar, sem naut, þegar best lét, meiri vinsælda en dæmi...

Standa ber vörð um framboð umfram eftirspurn

Bandalag íslenskra leikfélaga skorar á stjórnvöld að standa vörð um fjárhagsgrundvöll leikfélaga. Á móti heita leikarar að halda áfram að mæta í vinnuna, hvað sem líður eftirspurn eftir þeirra vinnuframlagi. Að haldið sé áfram að miðla listinni er...

ASÍ, hvaða fyrirbæri er það?

Í „gamla daga“ var unun að hlusta á góðar og kjarnyrtar barátturæður foringja verkalýðsins á 1. maí hátíðahöldum og öðrum baráttusamkomum. Fólk gleypti í sig hvert orð og fylltist baráttuanda og vígamóð. En þetta er liðin tíð. Baráttuandinn...

"Snyrtilega lagt"

Sumir víla ekki fyrir sér að leggja eins og þessar myndir sýna til að spara sér örfá spor. Stæði var laust einni bíllengd frá. Gangandi vegfarendur þurftu að fara út á akbrautina til að komast framhjá. Þetta er ökumanni Land Cruiser bifreiðarinnar YJ 706...

Er piss utan í vegg alvarlegra en líkamsárás?

Eru ekki allir sammála um að þessi fólskulega árás á stúlkuna sé grafalvarlegt mál. En ætla mætti að lögreglan sé á öðru máli. Þó lögreglan hafi fulla vitneskju um málið, aðhefst hún ekki nema fram komi formleg kæra! Getur þetta staðist skoðun? Eru...

Hvar liggja völdin?

Konur í Kenýa hóta að beita sínu öflugasta vopni til að hafa sitt fram. Þær munu sýna, að þegar upp er staðið ráða konur því sem þær vilja ráða, en láta karlana um restina, svo þeir haldi að þeir hafi völdin. Var ekki verið að tala um...

Gagnlausar ráðstafanir

Rykgríma sem vörn gegn flensunni er sennilega álíka góð vörn og regnhlíf gegn loftsteini.

Árna Johnsen misbýður og játar

Sú saga gekk skömmu fyrir kosningar að Sjálfstæðismenn hefðu með brögðum reynt að fá fólk sem ekki ætlaði að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi til að ógilda atkvæði sitt. Aðallega voru ungir kjósendur sagðir að hafa notið þessara leiðbeininga...

Hreðjarnar taka völdin

Af þessari átakanlegu yfirlýsingu eiginkonu Silvios Berlusconis forsætisráðherra Ítalíu, í fjölmiðlum, má glögglega ráða að Silvio karlinn hugsar hreint ekki með höfðinu. Það er Ítölum vonandi fagnaðarefni að landinu sé stjórnað af „hörðum...

Hvar liggur hollustan?

Klaufalegt vægast sagt hvernig þetta mál er vaxið og öll umgjörð þess. Fyrir hvað hefur sendiherrum Bandaríkjanna verið veitt Fálkaorðan og hver var ástæða þess að bæta átti þessari sendit.. Carol van Voorst, í þann hóp? Er Fálkaorðan ekki veitt fyrir...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband