„Gamall kunningi“ Mannréttindadómstólsins

RikisstjornGHHIIÞað er bara broslegt að sjá að ríkisstjórn lýðveldisins Íslands skuli ætla að leita til Mannréttindadómstóls Evrópu til að rétta sinn hlut.

Ísland er raunar „gamall kunningi“ dómstólsins. Ég efast um að nokkurt ríki hafi setið hlutfallslega jafn oft á sakamannabekk fyrir þeim dómstól  og Ísland, fyrir yfirgang og átroðslu á þegnunum.


mbl.is Leita til mannréttindadómstóls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skriða úrsagna úr Samfylkingunni?

Þetta er bara fyrsti „stóri steinninn“ sem fellur úr Samfylkingunni og rúllar niður hlíðina. Það er trú mín að þeim steinum fari fjölgandi á næstu vikum og endi með skriðu, haldi flokkurinn áfram á sömu braut.

Samfylkingarfólk hefur fengið upp í háls af því hvað forysta og ráðherrar flokksins eru tilbúin að ganga langt til að geta klórað lúsugan makkann á Sjálfstæðisrakkanum.


mbl.is Guðmundur í Framsóknarflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heigulsháttur utanríkismálanefndar

árni páll árnasonÁrni Páll Árnason  varaformaður utanríkismálanefndar  gerir sig barnalegan í meira lagi þegar hann segir að slit á stórmálasambandi  við Ísrael óskynsamleg og yrði til þess að við gætum ekki komið okkar skilaboðum á framfæri við þá. Hvaða helvítis bull og vitleysa er þetta í manninum? Þarna talar Sjálfstæðisflokkurinn sem óttast að missa kyssiblett sinn á rassi USA ef Ísrael er styggt.

Skammastu þín Árni og allir þeir sem hann mælir fyrir.

Slitum við ekki stjórnmálasambandi við Breta í síðasta þorskastríðinu? Voru það mistök? Gátum við ekki eftir það komið okkar sjónarmiðum á framfæri við Breta? Jú það var gert í gegnum Norska sendiráðið í London.

En skýrustu skilaboðin,  skilaboð sem ekki voru misskilin, sendum við Bretum og umheiminum einmitt þegar við slitum stjórnmálasambandi við þá, skýrari og harðari gerast ekki skilaboð í milliríkjaviðskiptum.

B-52bombingAf hverju viljum við ekki senda Ísraelum okkar skýrustu og hörðustu skilaboð, erum við samþykk aðgerðum þeirra?  Styðjum við sprengjukast  Ísraela á börn og aðra borgara? Leggjum við blessun okkar yfir þessi morð?

Hvað þarf til að Íslendingar hafni svona framferði,  jú það er augljóst, það sem þarf til er að morðin séu Bandaríkjunum ekki þóknanleg, þá vaknar samviska Sjálfstæðisflokksins.


mbl.is Deilt um stjórnmálasamband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klofnar Sjálfstæðisflokkurinn í tvo eða fleiri parta?

Anti-capitalism_colorYfirgnæfandi líkur eru á að Evrópumálin kljúfi Sjálfstæðisflokkinn, spurningin sé aðeins hvenær, hvernig og  í hve marga parta.

Leiða má að því líkur að þeir sem hvað helst aðhyllast aðild að Evrópusambandinu í Sjálfstæðisflokknum séu kratar sem af einhverjum óútskýranlegum ástæðum hafa fundið sér skjól þar frekar en með öðrum krötum.

Sá klofningur sem fyrirsjáan- legur og óumflýjanlegur virðist í Sjálfstæðisflokknum út af Evrópumálunum kann að skila þessu fólki til síns heima.

Þó kann svo að fara að þeir sitji áfram og myndi kjarna hins nýja Sjálfstæðisflokks, sem yrði þá hægrisinnaður krataflokkur, en hægri armur flokksins, frjálshyggjan og íhaldið kljúfi sig frá og myndi  nýjan Íhaldsflokk.

Sá Íhaldsflokkur, og hans hugsjónir gætu þá sannarlega ekki falið sig undir falska flagginu „Stétt með stétt“ eins og þeir hafa gert í Sjálfstæðisflokknum um áratuga skeið.

Fari svo væri upp komið nýtt og áhugavert landslag í Íslenskri pólitík.


mbl.is Taugastríð Geirs og Ingibjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætluðu að afhenda áskorun.......

............. og?monkeys

??

??

 


mbl.is Afhenda forsætisráðherra áskorun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er Ingibjörg, sú sem fór mikinn fyrir kosningar?

Ríkisstjórnir Svíþjóðar og Noregs hafa fordæmt framgöngu Ísraels á Gaza.

Hver er afstaða Íslands?  Er hún fólgin í símaávísun upp á örfáa dollara? Er frú utanríkisráðherra liðleskja? Hvað varð af utanríkisstefnu Samfylkingarinnar?

Fer Samfylkingin bara með utanríkisráðuneytið til málamynda, ræður stefna Sjálfstæðisflokksins þar alfarið ríkjum?

Utanríkisstefna Sjálfstæðisflokksins er eins og allir vita rekin í gegnum faxtæki  Hvíta hússins og því er ljóst að fyrr frýs í helvíti en að þeir samþykki eitthvað sem styggir Ísrael.

Ertu liðleskja frú utanríkisráðherra? Ertu uppá punt? Hvar er Ingibjörg fyrir kosningar? Enginn vill þessa Ingibjörgu eftir kosningar.

Nú þarf Samfylkingin að taka á honum stóra sínum og leiðrétta stefnuna áður en illa fer.

Þolinmæði grasrótar Samfylkingarinnar er á þrotum.

 
mbl.is Framganga Ísraels fordæmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt nýtt ár

Óska bloggvinum mínum, og landsmönnum öllum, gleðilegs nýs árs með þökk fyrir það liðna. Gangið hægt um gleðinnar dyr. . .

Ekki í mínu nafni

Þessi háttsemi er til skammar, þeim sem þátt tóku og þeim sem mæra þetta á bloggsíðum sínum. Þeir sem kætast, draga væntanlega glaðir upp veskið og greiða skemmdir. Einhverjir fengu piparúða í augu og leika nú hlutverk píslavottsins af innlifum,...

Fyrirsögn ársins

Hér hafa fréttamenn mbl.is toppað sjálfa sig. . . . . Ölvaður ökumaður á hlaupum

Kemur á óvart, eða þannig.

Getur það verið að eitthvað hafi verið athugavert við málið? Er það tilfellið? Nei, þetta er auðvitað bull í umboðsmanninum, hvað er hann að vilja upp á dekk og finna að sigldum manni sem hefur talað við breska fjármálaráðherrann í...

Í okkar umboði og með okkar samþykki!

Margar hafa þær verið skráðar frásagnirnar og sögunar úr hildarleik helfararinnar. En ansi er ég hræddur um að mikið sé af frásögnum sem þessari sem eru verulega ýktar eða helber uppspuni, sögur sem hafa verið gefnar út og tekið gagnrýnilaust vegna þess...

Níðingsverk

Ísraelar eru að fremja níðingsverk, að venju og í umboði Bandaríkjanna og fleiri þjóða. Ekki ætla ég að verja svokallaðar eldflaugaárásir Hamas á Ísrael en þær eru sem saklaust steinkast samanborið við hernaðaraðgerðir Ísraela. Í fréttaflutningi á...

Hvað má og hvað ekki?

Það var hluti varnar lögfræðings mannsins að hann væri ekki sekur þar sem ekki væri sérstaklega tekið fram í lögum að bannað væri berja nemendur í skólum! Má ekki með sömu rökum segja, ef það er ekki sérstaklega tekið fram í lögum, umfram almenn ákvæði...

Batnandi páfa er best að lifa

Það er mikið til í því hjá páfanum blessuðum að hugsi menn eingöngu um eigin hagsmuni muni illa fara. Leiðtogar Kaþólsku kirkjunnar og annarra kirkjudeilda,hafa í gegnum aldirnar og allt fram á þennan dag, þráfaldlega sett veraldlega hagsmuni kirkjunnar...

Hugrekki, byggt á blekkingu

Það er ekkert ofurhugalegt við þessa sýningu Ástralans, aðeins örlítil kunnátta í rafleiðni og rafsegulfræði. Elding (rafmagn) fer alltaf styðstu og auðveldustu leiðina. Eldingu slær alltaf niður í næsta punkt sem hefur jarðtengingu. Málmgrindin sem...

Sannleiksþrá

Úr því að sannleiksástin greip ræfils prestinn heljartökum hefði hann átt að segja allan sannleikann og upplýsa að ævintýrið um Guð & Co ætti ekki samleið með sannleikanum frekar en önnur ævintýri ef grannt væri skoðað. Jólin eiga uppruna sinn í heiðni,...

Gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár.

Óska landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og gæfuríks komandi nýárs. Þakka heimsóknir á bloggið og myndasíðuna www.123.is/axeljoh á árinu sem er að líða. Axel Jóhann Hallgrímsson Skagstrendingur ehf. óskar starfs- mönnum, viðskiptavinum svo og...

Hvað þarf stóran bolta?

Þar sem ég er ekki kona er ég kannski kominn út á hálan ís að blogga um þetta mál af vanþekkingu einni saman. En ég get ekki annað en spurt sjálfan mig og ykkur konur, hvernig í ósköpunum er hægt að vera með bolta sem er sex cm í þvermál upp í...

Litla Ísland minnir á sig.

Enn heldur litla Ísland áfram að skekja Danmörku og Svíþjóð. Kannski eftirhreytur bankahrunsins?

Skal hundur heita, ef ekki er refur

Þeir hafa verið bölvaðir refir í gæludýrabúðinni að pranga ref inn á saklausan manninn. .

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband