Bifreiðin SK 033

Rétt fyrir kl. 16.30 í dag verslaði fólk á bifreiðinni SK 033, sem er hvít Hyundai, í  lúgu í Bárunni  hér í Grindavík. Bifreiðin var síðan færð 20 metra frá lúgunni og þar voru krásirnar snæddar.

Þetta væri í sjálfu sér ekki í frásögur færandi ef ekki hefði legið á götunni, hrúga af rusli, þegar þetta ágæta fólk ók á brott.

Það væri þessu fólki til sóma ef það sægi að sér og kæmi og hirti upp eftir sig ruslið og henti því þar sem ruslið á heima.


Breytt hegðan bætir ástandið, eða hvað?

 

Dregið hefur úr vandamálum sem fylgja papparössum í borg Englana. Ástæðan mun víst vera sú, að sögn William Bratton lögreglustjóra þar á bæ, að  „Britney Spears er farin að „ganga í fötum og haga sér sæmilega,“ París Hilton er farin úr bænum, „guði sé lof,“ og „Lindsay Lohan er víst orðin að lesbíu.““

Sú síðastnefnda mun víst ekki hress með þessa yfirlýsingu, enda hefur þessi „skápaútferð“ hennar eflaust átt að auka á umtalið. Sumir virðast þrífast á því og lifa fyrir það.

 


mbl.is Lohan skammar lögguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirmynd fyrirmyndanna.

Bandaríkin vilja gjarna gefa þá mynd af sér og trúa því að þau séu fyrirmynd annarra ríkja. Bandaríski herinn á að vera sá besti á öllum sviðum. Eitthvað er samt rotið og illaþefjandi þar innandyra ef þessar tölur eru réttar. 40% kvenna í bandaríska hernum hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af einhverju tagi. Og þriðju hverri konu í hernum er nauðgað!  

Þriðju hverri konu í hernum er nauðgað!     

Aðeins 8% kæra um kynferðislegt ofbeldi í hernum fer fyrir dóm! Málin eru þögguð niður. Þar vinna sem ein hönd væri allt frá gerendum til æðstu yfirmanna í varnarmálaráðuneytinu. Gott teymi það og sannarlega fyrirmynd allra fyrirmynda.

 


mbl.is 29% kvenhermanna nauðgað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tæplega matvinnungur

Ætli hann þurfi að renna á limmanum til Mæðrastyrksnefndar fyrir jólin til að ná sér í hangiket í matinn?

 


mbl.is Með 62 milljónir á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttarfarslegur harmleikur.

Þessi frétt vekur í senn sorg og furðu og var lestur hennar átakanlegur. Þetta er harmleikur ekki hvað síst þeirra sem eiga um sárt að binda vegna gerða þessa skrímslis, svo er niðurstaða  þessa máls, réttarfarslegur harmleikur.

Í niðurstöðu héraðsdóms segir, „að við ákvörðun refsingar sé litið til þess að maðurinn hafi gerst sekur um mörg kynferðisbrot gegn barnungum stúlkum og að sum þeirra séu mjög alvarleg. Brot hans tóku að hluta til yfir langt tímabil og hann nýtti sér sakleysi stúlknanna og trúnað og traust sem dætur hans og stjúpdóttir báru til hans. Þá hafi  framburður hans einkennst af því að hann vilji draga úr ábyrgð sinni og varpa þeim yfir á þolendur misgjörða sinna, en á þessu hafi einkum borið þegar maðurinn lýsti afstöðu sinni til þeirra brota gagnvart stjúpdóttur sinni og annarrar stúlku.“

Ekki verður annað skilið af þessu en að dómurinn telji að þung refsing sé eðlileg og sanngjörn í ljósi brotanna. Fjögurra ára dómur er semsagt þungur dómur í þessu máli að mati réttarins.

Sveiattan bara.

Svo er þolendum dæmdar bætur fyrir það tjón sem þeir hafa hlotið andlega og líkamlega og þær eru svo „ríflegar“ að þær eru samtals rétt rúmlega þóknun þeirra löglærðu sem að málinu komu.

Sveiattan.

Það er ljóst vegna aðkomu barnaverndaryfirvalda að málinu að þau þurfa að taka sig í naflaskoðun, eitthvað brást, svona má ekki gerast.

Nú hefur aftur verið brotið illa gegn  þolendum í málinu. Þessi dómur er eins og blaut tuska í andlit þeirra og reyndar í andlit þjóðarinnar allrar, nema þeirra ógeða sem svona stunda, þeir brosa í laumi.

Sveiattan. 


mbl.is 4 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhverfisverndarhræsni

Svo virðist að þeir umhverfisverndarsinnar sem Urriðafoss heimsækja á dánarbeðið, séu ekki alveg heilir í gegn í umhverfis heilagleika sínum. Í það minnsta finnst þeim ekkert athugavert að skilja eftir sig rusl af öllu tagi. Það passar ekki alveg inn í helgimyndina.
mbl.is Fossinn sem gleymdist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefði betur gerst í BNA

Ef þetta hefði gerst í BNA væri viðkomandi búinn að stefna húseiganda fyrir að hafa svalirnar ekki aðgengilegar fyrir innbrot og væri allt eins líklegur til að vinna málið og fá himinháar skaðabætur.

Bönnum fótbolta

Í fótbolta sjá allir eftir, spörkum, hráka, munnsöfnuði og nefndu það, þegar dómarinn hefur séð það. Að spila fótbolta getur kannski verið kikk og gaman, en að horfa á aðra og það atvinumenn í "íþróttinni" fá kikk og leika sér og það í gegnum sjónvarp er...

Óhapp eða afleiðing?

Lukkulega varð ekki manntjón í þessu óhappi. Ég las það einhverstaðar eða heyrði í útvarpi að flugvirkjar hefðu fundið vott af tæringu í vélinni við skoðun nýlega, en ekkert hefði verið aðhafst. Er aukin eldsneytiskostnaður að koma niður á viðhaldi í...

Hann er víða vandinn!

Enn ein fréttin um furðulegan þankagang bandaríkjamanna. Ef ekkert gengur er gjarnan gripið til byssunnar, sama hver vandinn er. Hann mun hafa verið þokkalega búinn til heimavarna þessi náungi. Enda rétt að vera við öllu búinn þegar menn lenda upp á kant...

Geimverur hafa sannarlega lent......

Þann 20. júlí 1969 lentu geimverur á fylgihnetti reikistjörnu einnar. Þegar þeir voru lentir sendu þeir skilaboð heim. „The Eagle has landed“ („Örninn er sestur“). Það er harla ólíklegt að ekki sé líf um allan geiminn. Í okkar...

„Saving Iceland“ fellir grímuna

Þetta sýnir svo ekki verður um villst að yfirlýst markmið Saving Iceland er bull og yfirskin eitt. Samtökin, sem gefa sig út fyrir að vinna að göfugu markmiði í þágu mannkyns, sigla undir fölsku flaggi. Raunverulegur tilgangur er sá eini að stofna til...

4 mánaða barni stungið í steininn?

"Parið, ásamt barninu, gisti fangageymslur lögreglu um nóttina. Voru barnaverndaryfirvöld látin vita í kjölfarið." Var barninu stungið inn ásamt foreldrunum? Er rétt með farið? Ótrúlegt og hrollvekjandi ef satt er.

Jafntefli

Var þetta ekki jafntefli? Þurfa ekki allir íbúar hússins, jafnt menn sem pöddur að leita sér að nýju húsnæði?

Pappalöggur til starfa á ný?

Þetta merkilega ástand, mannlausar fangageymslur í Reykjavík á aðfaranótt laugardags, kemur flestum á óvart, þó ekki borgarstjóra. Hann sér þarna beina tengingu við „það góða starf“ sem verið er að vinna í miðborginni, og þá ekki hvað síst í...

Að hafa aðgang að konu

Hvað felst í því að hafa "aðgang að konu"?

Hvað meinar Mr. Brown?

Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands ávarpaði Knesset í dag þar sagði hann m.a. að Bretar muni standa með Ísraelum í „baráttunni fyrir frelsi“. Hvaða frelsi Mr. Brown? Frelsi þeirra sem Ísraelar kúga, oka og ofsækja með stuðningi UK og...

Þetta er smámál, hvaða læti eru þetta?

Við getum rétt ímyndað okkur hvaða læti væru í gangi núna ef Palestínumenn hefðu skotið Ísraela í fótinn við yfirheyrslur. En það er huggun að Ísraelsher er að rannsaka málið. Þegar hann rannsakar sjálfan sig verður réttlætinu fullnægt, ekki...

Er munur á kúk og skít?

Býður ekki blessuð Biblían okkur að gera einmitt þetta? Okkur er af ríkinu boðuð trú á guð og Biblíuna. Af hverju förum við ekki eftir þessum helgidómi okkar og gerum eins og Biblían býður? Í stað þess gagnrýnum við aðra trúarhópa sem fara eftir bókinni....

Hér hefurðu smá aur, ef þú hagar þér vel.

Það er gott og blessað að rétta þurfandi fólki pening til að deyfa neyð þess. En Palestína hefur meiri þörf á stuðningi heimsins til endurreisnar á þjóðríkinu Palestínu svo þeir geti lifað með reisn og brauðfætt sjálfa sig, heldur en einhverjum ölmusum...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband