Táradalurinn mikli
16.8.2011 | 17:46
Samtök atvinnulífsins tala aldrei um annað en erfiða tíma, hjá þeim eru aldrei góðæri, engu auðveldara er fyrir launþega eitthvað til þeirra að sækja þegar best lætur en verst.
Það er grátið út í eitt hjá SA, sama hvernig ástandið er. Þeir mega eiga það, að í grátinum standa þeir sig vel hjá SA, Grátmundur formaður og Tárahjálmur framkvæmdastjóri. Tárahjálmur hefur sennilega landsins stærstu tárakyrtla síðan Kristján Ragnarsson var og hét hjá LÍÚ. Sá gat nú grátið, og grætt alla í kringum sig, gott ef hann var ekki ábyrgur fyrir syndaflóðinu forðum.
Hvergi er slegið af taumlausri græðgi og tilætlunarsemi þeirra ríku og kröfum þeirra á ríkið um ívilnanir og skattalækkanir hverskonar.
Til eru þeir stóreignamenn og atvinnujöfrar sem sjá ljósið, en andskoti eru þeir orðnir fáir. Warren Buffett hvatti nýverið til skattahækkana á sér og öðrum hátekju- og stóreignamönnum í Bandaríkjunum.
Hann sagði þá ofurríku endalaust gera ósanngjarnar kröfur um skattalækkanir og ívilnanir hverskonar án þess að leggja nokkuð sem neinu næmi til samfélagsins og til varnar landinu meðan millistéttin og látekjufólk bæri byrðarnar og mannaði herinn, honum og öðrum efnamönnum til varnar.
Svona maður var Þorvaldur heitinn í Síld og Fisk, hann borgaði sína skatta og skyldur með bros á vör og glöðu geði og bað jafnvel um meira.
En síðan Þorvaldur hvarf yfir móðuna miklu hafa Íslendingar engan auðmann átt sem ekki telur verulega að sér vegið með sköttum og gjöldum hverskonar. Einu gildir hversu hratt, kröftuglega og vel auðmenn okkar hafa efnast. Hver króna sem samfélagið krefst af þeim er rán í þeirra augum, jafnvel þó þeim hafi áskotnast meira fé en þeim endist ævin til að eyða, þó þeir gerðu ekki annað.
Svo gráta þeir og gráta, búmennirnir í AS, sem sögðu vaxtalækkun í kjölfar hrunsins forsendu fyrir þeirra upprisu, vextirnir lækkuðu, en þeir liggja enn vælandi með nefið í sverðinum og krefjast þess að þeim verði snýtt, þegar þeim hentar.
![]() |
Mótmæla skattahækkunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég verð óþolandi af monti í dag
16.8.2011 | 07:58
Fæðingin gekk vonum framar og öllum heilsast vel.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 08:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Pakistanar bera kápuna alltaf á báðum öxlum
15.8.2011 | 21:31
Þessar fréttir af Pakistönum ættu ekki að koma neinum á óvart. Enginn velkist í vafa um að Osama bin Laden hafi getað leynst fyrir umheiminum í Pakistan árum saman án vitundar annað hvort ríkisstjórnar Pakistans eða hersins, nema hvorutveggja sé.
Flestum, ber saman um, þar sem innflytjendur séu fjölmennir á vesturlöndum, að engir komist með tærnar þar sem Pakistanar hafa hælana í undirferli og öllum mögulegum samskipta- og umgengniserfiðleikum. Sagt er að um leið og einn Pakistani flytji í blokk fari allar íbúðir blokkarinnar með það sama á sölu.
Það er undarlegt að Bandaríkjamenn skuli hafa þá að bandamönnum eða það skýrir öllu heldur neyð þeirra og örvæntingu í þessum heimshluta. Það er ljóst að Bandaríkjamenn treysta ekki þessum bandamönnum sínum fyrir horn í einu né neinu. Þeir hafa mokað í þá fé árum saman, til að kaupa sér velvild, sem aldrei hefur orðið nema að nafninu til.
Saga Pakistan sýnir og sannar að þeir sitja á svikráðum við allt og alla, utan, jafnt sem innan sinna raða. Þeim virðist eðlislægt að bera kápuna á báðum öxlum.
![]() |
Gruna Pakistana um græsku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þeim svíður sem undir mígur
15.8.2011 | 17:27
Æ,æ, er angaskinnið hann Breivik leiður og ósáttur með einangrunina í gæsluvarðhaldinu?
Það er ljótan ef karl tuskunni finnst hann órétti beittur.
.
![]() |
Vill vera viðstaddur réttarhaldið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Glæsilegt
14.8.2011 | 22:29

Til hamingju strákur!
.
.
.
.
Lítið á skoðanakönnunina hérna til vinstri!
![]() |
Magnað afrek hjá Ólafi Loftssyni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er hart...
13.8.2011 | 23:39
... fyrir stolta þjóð og þurfa að spara sér til skaða. - Í boði íhaldsins.
![]() |
Ónýtar sprautunálar í útboði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Einstaklega ábyrg og hugrökk móðir
12.8.2011 | 18:59
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hitaveita á Skagaströnd - Góð áform en ekki endilega þau bestu
12.8.2011 | 13:58
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Eltingaleikur í Viðey
12.8.2011 | 11:30
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hvenær er nautaat ekki harmleikur?
12.8.2011 | 00:33
Fréttir | Breytt s.d. kl. 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Stuldur, nei efnahagsaðgerð
11.8.2011 | 09:57
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hetjan og ofurmennið Pútín
10.8.2011 | 17:05
Hefndin er ekki sæt, hún er súr.
10.8.2011 | 15:40
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fellur ríkisstjórnin?
10.8.2011 | 11:26
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
10 þúsund manna söfnuður barnanauðgara
10.8.2011 | 07:23
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 07:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Bátur á Blautalóni
9.8.2011 | 17:42
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Forarvilpa í nýju fötum keisarans
9.8.2011 | 15:54
Snýttu þér maður
9.8.2011 | 10:29
Dýrt verður drottins orðið.
9.8.2011 | 08:52
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 08:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Og sjá
8.8.2011 | 23:46
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.8.2011 kl. 00:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)