Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Vegurinn til framtíðar
23.3.2011 | 15:07
Atla Gíslasyni urðu á mistök á blaðamannafundi þeirra Lilju, þegar hann sló sjálfan sig til riddara með dramatískri yfirlýsingu að hann hefði vandlega íhugað að segja jafnframt af sér þingmennsku og það væri álitlegur kostur. Í kjölfar þeirrar yfirlýsingu Atla komu svo áskoranir frá svæðafélögum VG í Suðurkjördæmi um að hann gerði einmitt það.
Ásakanir Atla um að forysta VG hafi pantað áskoranir svæða- félagana er stórundarleg en samt rökrétt framhald á fyrri mistökum hans. Ljóst má vera að Atli ætlar ekki að leita sátta og auka samlyndi innan VG í bráð, hafi hann val um annað.
Atli er með þessum ásökunum klárlega að reyna að réttlæta þá ákvörðun sína að víkja ekki af þingi, ákvörðun sem hann hafði örugglega tekið áður en hann yfirgaf þingflokk VG og boðaði blaðamenn á sinn fund.
![]() |
Segir forystu VG hafa beðið um áskoranir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þráinn Bertelsson er illa fenginn
22.3.2011 | 21:24
Ég er alveg sammála því yfirgefi þingmenn þann flokk sem þeir voru kosnir fyrir á þing þá beri þeim að víkja af þingi og næsti maður á listanum komi inn á þing í staðin. Það hefur nokkuð verið um að þessi krafa sé gerð á Atla, að hann víki, en hvað með Lilju má hún sitja?
Svo er vert að hafa það í huga að áður en menn hrópa sig hása í svæðafélögum VG að Atli og Lilja víki af þingi, þá þarf VG fyrst að skila einum þingmanni.
Þráinn Bertelsson er illa fenginn, hann var ekki kjörinn á þing fyrir VG.
![]() |
Rétt að Atli víki af þingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Rekin úr nefndum?
22.3.2011 | 10:06
Hefur það ekki enn borist upp á ritstjórn Moggans að það voru Atli og Lilja sem sögðu sig úr þingflokki VG og þar með sjálfkrafa úr nefndum á vegum þingflokksins? Atli og Lilja sögðu það sjálf á blaðamannafundinum, var Mogginn ekki með blaðamann þar?
Núna eru Atli og Lilja orðin íhaldinu gagnslaus til niðurrifs innan VG, því munu ekki líða margir dagar þar til þau verða tekin niður af átrúnaðar- og dýrkunaraltari Moggans og verða aftur á síðum blaðsins gömlu, þreyttu og einskisnýtnu kommarnir sem íhaldið telur ekki hlandi á eyðandi.
Þá er hætt við að Lilju og Atla verði kalt, ein úti í horni, áhrifalaus og vonsvikin eftir að hafa pissað í skóinn sinn. Þó það hafi yljað um stundarsakir þá kólnar hlandið hratt þegar þau geta ekki lengur baðað sig í skjalli og falsi íhaldsins.
![]() |
Rekin úr nefndum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Stuðningur Lilju og Atla við ríkisstjórnina eykst!
21.3.2011 | 12:00
Tvíeykið Lilja og Atli hafa sagt sig formlega úr þingflokki VG, þingflokki sem þau hafa verið í virkri andstöðu við og ríkisstjórnina sem var mynduð með þeirra samþykki.
Rétt eins og Pílatus þvoði hendur síar forðum þá kannast Lilja og Atli ekki lengur við aðild sína að stjórnarsáttmálanum, sem þingflokkur VG samþykkti í fagnaðarvímu yfir myndun fyrst hreinu vinstristjórnarinnar á Íslandi.
Atli segist maður málamiðlana, svona er hans málamiðlun. Lilja tilgreindi, sem eina af ástæðum úrsagnar að ríkisstjórninni hefði mistekist að koma á kynjaðri hagstjórn á Íslandi!
Lilja og Atli sögðu bæði að sterklega hefði komið til greina að segja af sér þingmennsku, en þar sem þau ættu svo brýnt erindi á Alþingi þá hefði það ekki verið valkostur.
Þau ætla framvegis að styðja ríkisstjórnina í góðum málum, þannig að stuðningur þeirra við ríkisstjórnina hefur aukist eftir úrsögnina, ef eitthvað er. Hvort það er fagnaðarefni er önnur saga.
![]() |
Ætla ekki að styðja stjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Vertíðin er hafin
20.3.2011 | 18:26
Þá er fermingarvertíð prestanna hafin. Árlegar fermingar eru prestunum í fjölmennum sóknum sem heilög vertíð, Guðsgjöf nánast! Það er bitur reynsla margra að þessir ríkisstarfsmenn, þjónar kirkjunnar, hreyfi vart legg né lið í þágu safnaðarbarna sinna, nema fá fyrir það sérstaklega greitt. Þó er það vafalaust misjafnt eins og prestarnir eru margir.
250 börn fermast í Grafavogskirkju þetta árið að sögn eins prestsins í þeirri sókn. Gjaldtaka fyrir hvert fermingarbarn er samkvæmt gjaldskrá Innanríkisráðuneytisins fyrir aukaverk presta, kr. 9.300,- sem gerir 2.325.000,- í fermingabónus fyrir þá kirkju eina, þetta árið, þá eru önnur prestverk ótalin í þeirri sókn.
Ég ætla að leyfa mér að efast um að þessi opinbera gjaldskrá ráðuneytisins sé alfarið ráðandi við gerð reikninga. Nýlega heyrði ég í útvarpi frásögn manns sem fékk reikning fyrir útför náins ættingja. Þar var, auk annarra þátta, rukkað sérstaklega 8000,- kr fyrir akstur prestsins í sambandi við jarðaförina. Þetta var þrátt fyrir að reikningsgreiðandinn hefði sjálfur sótt prestinn og ekið honum heim að athöfninni lokinni. Þegar hann spurðist fyrir hverju þetta sætti var svarið að um staðlaðan reikning væri að ræða!
Hvað ætli margir syrgjendur greiði slíka staðlaða reikninga án athugasemda?
Hvað ætli stórt hlutfall af þessum aukagreiðslum til presta rati inn á skattaskýrslur? Hvað ætli margir gefi skattinum upp þessar aukagreiðslur, sem ég held að séu oftar en ekki reikningslaus viðskipti.
![]() |
Fermt í Grafarvogskirkju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Marklaus undirskriftasöfnun?
20.3.2011 | 17:03
Þegar farið er inn á undirskriftasöfnunina börn.is þá er beðið um nafn, kennitölu, tölvupóstfang og póstnúmer.
A.h!, hugsaði ég með mér, úr því beðið er um póstnúmer þá er meiningin að útiloka að fólk utan Reykjavíkur taki þátt í þessari undirskriftasöfnun!
Ég ákvað samt að prufa, fyllti út fullt nafn og rétta kennitölu að sjálfsögðu, ásamt póstnúmerinu 240 í Grindavík, ýtti á enter og viti menn þetta rann í gegn.
Ég er þar með bókaður sem fullgilt foreldri í Reykjavík, æfur út í áætlanir borgarstjórnarinnar til sparnaðar í rekstri.
Ég fer þess á leit að síðan fjarlægi nafn mitt af henni og vandi vinnubrögðin.
Því má bæta við að þó söfnunaraðilar muni þurrka út öll póstnúmer utan Reykjavíkur, telji þeir þau ekki einfaldlega góðra gjalda verð, má með þessu forriti hanna nánast hvaða nafn sem er með réttri kennitölu við hvaða póstnúmer í Reykjavík sem verkast kann.
Spurningin er, verður listinn sannreyndur?
![]() |
719 undirskriftir komnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Þvílík reisn!
19.3.2011 | 00:34
Ætlar því ofbeldi, sem framið var á Breiðavíkur börnunum aldrei að ljúka. Lagt var upp með í uppgjöri þessa leiðindamáls að einskonar þjóðarsátt yrði gerð um mannsæmandi bætur til þolenda ofbeldis og ranginda þessa alræmda unglingaheimilis.
En nú virðist, með úrskurði úrskurðanefndarinnar, sem salti hafi verið stráð í sár þeirra sem enn lifa af viðskiptavinum þessa Dachau Íslands.
Til að bíta hattinn af skömminni taka þessir eðal úrskurðarnefndarmenn sér hærri þóknun fyrir viðvikið, en þeir telja hæfa sem bætur til barnanna sem máttu þola áralanga niðurlægingu, misþyrmingarnar, nauðganir og ....og....!
Þvílík reisn er yfir sessu máli og meðferð þess!
Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því, að Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra láti þessa skömm standa!
Veði það niðurstaðan, er hún Jónanna mín sem áður var, mér endanlega horfin.
![]() |
Nefndarmenn fá meira en þolendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Misskilin atkvæði?
17.3.2011 | 00:50
Ég hef látið hafa eftir mér á blogginu að ég telji það ótækt að sjómenn á frystitogurum sem fóru á sjó áður en utankjörfundar- atkvæðagreiðslan hófst 16. mars og koma ekki í höfn fyrr en að loknum kjördegi, séu beinlínis sviptir atkvæðisrétti.
Það hef ég meint út í ystu fingurgóma og því gagnrýnt það af fyllstu sannfæringu.
Í þessu óefni hef ég eignast óvæntan bandamann, fjandvinur minn Jón Valur Jensson hefur ekki dregið af sér og óskapast einhver ósköpin, eðlilega, yfir þessu mannréttindabroti gegn sjómönnum og farið mikinn á bloggum sínum og hist og her.
En Jóni vini mínum yfirsést í einu mikilvægu atriði, þ.e.a.s. laun frystitogarasjómanna eru gengistengd. Það þýðir með öðrum orðum að falli gengi krónunnar, þá hækka laun sjómannanna lóðbeint í krónum talið, sem gengisfallinu nemur.
Hvað gerist verði Icesave fellt, jú þá fellur krónan, allir gera ráð fyrir því.
Hvað gerist þá? Jú laun sjómanna sem eru á gengistryggðu kaupi hækka sjálfkrafa! Eru þeir sem við slíkt kerfi búa líklegir til að ganga gegn slíkum freistingum?
Er Jón Valur, að þessu athuguðu, enn harður á því að fá þessi atkvæði í land?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jón Valur er manna vísastur....
16.3.2011 | 23:06
Svo fylgir hann því úr hlaði með þeim fullyrðingum og ranghugmyndum að skoðanakannanir haturs útvarps þeirra Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar, sem nefnist Útvarp Saga, séu marktækastar allra kannana.
Enda má til sannsvegar færa að skoðanakannanir á þeirri útvarpsstöð hafi aldrei brugðist sínum tilgangi.
![]() |
Mjótt á mununum um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Íslenskt carnival í Vín
15.3.2011 | 15:12
Jón Gnarr gerir það ekki endasleppt. Hann er þessa dagana í Austurríki að tala endanlega niður álit þarlendra á mörlandanum. Það er mjög misráðið af Jóni og öðrum stjórnmálamönnum Íslenskum að tala niður framtíð Íslands verði Icesave fellt. Slíkt tal skaðar enga nema okkur sjálfa. Það gerir vanda málið aðeins stærra og illviðráðanlegra verði samningurinn felldur, sem getur allt eins orðið.
Jón Gnarr ætlar blessunarlega ekki að fara í landsmálin, þrátt fyrir fáheyrðar vinsældir, hann ætlar að einbeita sér að Reykjavík. Nema auðvitað ef ríkisstjórnin fellur þá ætlar hann að yfirgefa borgina sína góðu og alla aðdáendur og forða sér til Grænhöfðaeyja.
Ég hygg að Grænhöfðar muni seint kunna okkur þakkir fyrir þá sendingu.
Ég var í fyrstu jákvæður gagnvart Jóni og Bestaflokknum, vildi gefa þeim séns og taldi að Jón Gnarr myndi fljótlega leggja trúðinn Jón á hilluna og taka til við stjórn borgarinnar. En það er orðið fullljóst að milli þeirra tveggja verður ekki skilið.
![]() |
Bölsýnn borgarstjóri í Vín |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)