Gefið á garðann

Það er kómískt að koma í búðir á laugardögum og virða fyrir sér atganginn við nammibarinn. Sú sýn minnir mig á gamla tíð, þegar ég stóð varla út úr hnefa og fór í fjárhúsin með honum afa mínum og nafna á Læk á Skagaströnd.

Atgangurinn í börnunum þegar þau troðast til að raða sér á sælgætisgarðann var ekki ólíkt kindunum hans afa þegar þær tróðu sér á garðann jafnóðum og gefið var á hann til að komast sem hraðast í töðuna.

Hitt er líka kómískt, af hverju það er tvöfallt  dýrara að versla sælgæti aðra daga en laugardaga? Ekki er mjólkin ódýrari á mánudögum en aðra daga eða súpukjötið ódýrara á fimmtudögum en aðra daga í þessum sömu verslunum.

   


mbl.is Nammi selt hér í tonnavís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litli snáðinn með eldspýturnar

6273Það er trauðla tilviljun að þrír sumar- bústaðir verði eldi að bráð í nágrenni Reykjavíkur á aðeins fjórum dögum.

Líklegast er einhver „að leika sér“  með eldspýtur.

 

mbl.is Þriðji bústaðurinn á fjórum dögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur fær bréf - stingur hann því undir ráðherrastólinn?

Elín Hirst hefur skrifað innanríkisráðherra bréf þar sem hún fer fram á að hann taki viðtal Nýs Lífs við lögreglustjórann á Suðurnesjum til efnislegrar meðferðar. Lögreglustjórinn, sem er mágkona Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur, segist ekki trúa ásökunum Guðrúnar á hendur föður sínum, Ólafi Skúlasyni heitnum.

Lögreglustjóranum er auðvitað frjálst hafa þessa skoðun, en ég er sammála Elínu Hirst að stöðu sinnar vegna hefði hún átt að halda þessari skoðun sinni fyrir sig. Það er fráleitt að hún, sem lögreglustjóri,  geti leyft sér í viðtali við glanstímarit að upplýsa um persónulega skoðun sína á sekt eða sakleysi manna í einstökum málum. Málum sem ekki hafa verið endanlega til lykta leidd.

Lögreglustjórinn hlýtur, sóma síns vegna, að segja af sér, eða að standa frami fyrir brottvikningu ella.


LÍÚ - er það okkar vilji?

Jæja núna hafa guðirnir hjá LÍÚ vaknað og allt í einu vilja þeir samráð og samninga.

En að því tilskyldu auðvitað að ríkisstjórnin dragi til baka sjávarútvegsfrumvarp sitt.  

Útvegsmenn hafa fram að þessu í skjóli Sjálfstæðisflokksins hafnað allri  aðkomu að framtíðarfyrirkomulagi greinarinnar í trausti þess að flokkurinn sá tryggði þeim alfarið nýtingarréttinn.

Núna er merkjanlegur skjálfti innan LÍÚ þess efnis að það gerist ekki.

Látum helvítin skjálfa.   


mbl.is Ríkisstjórnin dragi frumvörpin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitthvað nýtt?

Hafa ekki allir krimmar landsins og þó víðar væri leitað, lýst yfir sakleysi sínu fram í rauðan dauðann og þungan dóm?

 
mbl.is Þorsteinn hafnar ásökunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegar konur og sómi Íslands

lögguhúfurMikið eru þetta glæsilegar konur á meðfylgjandi fréttamynd.  Þær verða landi sínu og stétt til sóma, enginn spurning um það.

Það er faganðarefni að konur í lögreglunni skuli ekki lengur þurfa að þola þá kynniðurlægingu að bera önnur höfuðföt og búninga en karlar í sömu starfsstétt, eins og tíðskaðist.

.

.

Kíkið á skoðanakönnunina hér til vinstri.  Hún er í þremur hlutum.  Skemmtilegast er,  sé öllum möguleikunum svarað.


mbl.is Stelpurnar stóðu vaktina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lifir Pétur Blöndal bara í núinu?

Það er stór undarlegt þegar sæmilega vel gefnir menn eins og Pétur Blöndal koma með svona afspyrnu bjánalega tillögu. Af þeirri ástæðu einni, að því er best verður séð, að það hentar stundarhagsmunum Sjálfstæðisflokksins. Þegar forsetinn hafði synjað...

Deep Purple Beethoven 5th Symphony

(Margmiðlunarefni)

Brýtur Framsóknarflokkurinn í bága við almenna skynsemi?

Framsóknarflokkurinn hefur komist að því eftir ítarlega rannsóknar- vinnu að glæpir og sér í lagi glæpir sem eru þokkalega skipulagðir samrýmist ekki stjórnarskránni. Flokkurinn vill gera rótæka breytingu á gildandi lögum og leggur til að tekin verið upp...

Litli Samherjastrákurinn grillaður í eigin feiti

Landsmenn bíða með öndina í hálsinum eftir tilfinningaþrungnum pistlum frá Hannesi Hólmsteini og Birni Bjarnasyni, hvar þeir munu fara hamförum, og krefjast þess allir vondu vinstri óþekktarormarnir hjá Kastljósi RUV verði reknir, og það ekki seinna en í...

Grænu sjónarmiðin vænu

Það er undarlegt sjónarmið að finnast það sorglegt að einhver hafi getað gert sér „mat“ úr hræinu áður en það rotnar niður. Sumum virðist líða betur að sjá og vita verðmæti fara forgörðum, ónýtt og engum til gagns, hvort heldur það eru...

Vindhænsn

Lilja Mósesdóttir varar eindregið við því að menn tali upphátt um galla krónurnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Hún segir að með gáleysislegu tali, tali menn niður íslensku krónuna. Fyrir nokkrum dögum barði þingmaður einn sér á brjóst og lýsti því...

Þá var nú gráturinn skemmtilegri en fýlan

Nú þá verður fyrirkomulagið á kvótanum alveg eins og það er, nema hvað leiguliðarnir í kerfinu leigja „pottana“ af þjóðinni, sem fær arðinn en ekki sægreifarnir, sem eru núverandi leigusalar. Von að Friðrik J. Arngrímsson sé fúll, raunar er...

Illa farið með fjármuni

Það er ekki hin minnsta hætta á því að Anders Behring Breivik lifi það af að sitja af sér væntanlegan dóm. Nema auðvitað að ætlunin sé að vakta hann allan sólarhringinn, árið um kring og árin út meðan hann verður í gæslu. Ég hygg að margir séu sammála um...

Æ, æ, æ!

Ekkert má nú! Vonandi hafa þessar viðkvæmu sjampó sálir ekki séð þessar auglýsingar: . . Kíkið á skoðanakönnunina hér til vinstri. Hún er í þremur hlutum. Skemmtilegast er, sé þeim öllum svarað.

Ástarbrími Moggans

Ritstjóri Moggans virðist vera haldinn alvarlegri aðdáunar þráhyggju gagnvart Hugo Chavez forseta Venesúela. Eflaust sér ritstjórinn sjálfan sig í þessu stórmenni mannkynssögunar og birtir því fréttir og myndir af honum Hugo sínum í tíma og ótíma og af...

Ný könnun - í þremur liðum

Í komandi forsetakosningum er margt sem bendir til þess að hr. Ólafur Ragnar Grímsson fari létt með sigur, verði margir í kjöri. Sigur hans er ekki eins vís, verði aðeins tveir í kjöri, Ólafur og einhver annar öflugur frambjóðandi, þá getur allt skeð. Ég...

Framtíð forsetans getur oltið á fjölda frambjóðenda

Ég hef verið með svipaða könnun um fylgi frambjóðenda og mögulegra frambjóðenda hér á blogginu, niðurstaða minnar könnunar er öllu hagstæðari fyrir forsetann en í könnun Capacent Gallup. Niðurstaðan í minni könnun er þessi: Ari Trausti Guðmundsson 6,60%...

Meðgangan langa og stranga

Meðganga kvótafrumvarps ríkisstjórnarinnar hefur verið ströng og er orðin álíka löng og meðganga hjá fílum. Meðgöngunni er loks að ljúka og komið að fæðingu ungans. Hætt er við að það verði þjóðinni sár vonbrigði, eftir allar þessar þrautir og þjáningar,...

Olíufélögin sýknuð, því of margir rannsökuðu glæpinn

Þessi niðurstaða Héraðsdóms er með ólíkindum. Dómurinn lýsir olíufélögin sek um verðsamráð en sýknar þau samt. Forsendan sem dómurinn gefur sér fyrir þessari fráleitu niðurstöðu er að lögreglan hafi verið að rannsaka glæpi olíufélaganna á sama tíma og...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.