"Íslendingar hunsa þau verkefni sem mestu skipta en eyða þess í stað orku sinni í tittlingaskít"
10.4.2012 | 15:05
Í grein í Fréttablaðinu, hvar frá er skýrt á Vísi.is, kemst Árni Páll Árnason að kjarna málsins, grunni þess vanda sem Íslenska þjóðin á við að etja í dag. Það er þó ekki afleiðing hrunsins, ekki gjaldeyrishöftin eða staða atvinnumálanna eins og ætla mætti. Aðalvandamálið er hinn algerri viljaskortur á Alþingi Íslendinga að takast á við þessi vandamál og leysa þau. Án vilja til þess verða vandamálin óleyst og viðvarandi.
Á Alþingi kristallast vandinn í þeirri staðreynd að ríkisstjórnin stendur afar tæpt og á því í ákveðinni tilvistarkreppu. En tæp staða ríkisstjórnarinnar er samt ekki aðalvandinn á Alþingi. Stjórnarandstaðan er aðalvandinn, stjórnarandstaða sem forðast eins og heitan eldinn að axla ábyrgð og koma að lausn vanda landsins. En nýtir þess í stað allan styrk sinn til þess að þvælast sem mest fyrir og spilla málum sem mest fyrir þeim sem þó reyna sitt besta.
Eða svo notuð séu tilvitnuð orð Árna í Laxness, að þeir; hunsi þau verkefni sem mestu skipta en eyði þess í stað orku sinni í tittlingaskít.
Mottó stjórnarandstöðunnar og sumra stjórnarþingmanna virðist vera -að betri sé fullur skaði en enginn-, eins og einhver orðaði það svo skemmtilega.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hið sanna ríkidæmi
9.4.2012 | 20:30
Við gömlu brýnin, fórum í dag að ná í Axel Þór dótturson minn og nafna á Reykjavíkurflugvöll, ég og amma hans. Nafni var að koma úr páskaheimsókn til pabba síns á Akureyri. Mamma og fósturfaðir Axels komust ekki svo við gömlu græjurnar hlupum í skarðið.
Það var eins og alltaf áður við svipuð atvik eins og í flugstöðinni, þegar Axel litli kom hlaupandi til okkar og flaug upp um hálsinn á okkur, þá fannst mér eins og ég hefði himinn höndum tekið. Það sama á við um öll barnabörnin, ég bráðna niður og verð að gjalti þegar þau umfaðma mig, með hlýju sinni og væntumþykju og kúra höfuð sitt í hálsakoti.
Manni verður ósjálfrátt hugsað, á stundum sem þessum hve ríkur maður er, rúmlega fimmtugur, að eiga sex barnabörn, hvert öðru dásamlegra.
![]() |
Gátu flogið þrjár ferðir vestur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vonandi lifa menn glaðan dag eftir þetta atvik
9.4.2012 | 19:39
Voðalegt mál er þetta varðandi Einar Magnús veðurfræðing, honum urðu á mistök í upptöku, sem tæknimenn sjónvarpsins kórónuðu svo með því að klúðra útsendingunni.
Hvaða læti eru þetta, á blogginu og ekki hvað síst á fésinu? Verða okkur öllum ekki á mistök daginn út og daginn inn, frá fæðingu til dauða?
Vonandi birtir aftur á morgun hjá þeim sem sjá ekki fram úr þessu vandræða atviki.
![]() |
Veðurfréttamaður RÚV vekur athygli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 19:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvað þarf Bashar al-Assad forseti Sýrlands að brjóta marga samninga og yfirlýsingar um að stöðva bardagana, áður en Kofi Annan og aðrar slíkar fígúrur átta sig á því að ekki fylgir hugur máli hjá forsetanum.
Eitt skil ég ekki, í svona stríðsrugli eins og í Sýrlandi. Samkomulag náðist í síðustu viku um vopnahlé! Þá hefði mátt ætla að bardögum yrði hætt strax! Nei ekki aldeilis, samþykkt var að menn héldu áfram í viku til viðbótar að drepa hvern annan, en hættu svo!
Reynslan segir hinsvegar að lítil von sé til þess að bardögum í Sýrlandi ljúki fyrr en fullur aðskilnaður hefur átt sér stað á búk forsetans og höfði.
![]() |
Vopnahlé eins og olía á ófriðarbál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sæti á Ólympíuleikunum í augnsýn
7.4.2012 | 16:57
Þeir eru á góðri siglingu strákarnir, þeir hafa greinilega fundið taktinn.
Áfram Ísland!
![]() |
Íslenska landsliðið á Ólympíuleikana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Friðar Svanhvít sjálfa sig neðanverða?
7.4.2012 | 02:02
Auðvitað klárum við að virkja nýtilega kosti í Þjórsá. Gerist það ekki á þessu kjörtímabili, mun það gerast síðar, ráði heilbrigð skynsemi.
Stefna núverandi umhverfisráðherra Svandísar Svavarsdóttur er stefna dauðans. Að hafna virkjunum í neðrihluta Þjórsár er álíka og Svandís blessunin komi heim til bónda síns að kveldi vinnudags með þær fregnir að fyrr um daginn hafi hún ákveðið, að frá umhverfislegu sjónarmiði, verði hún sjálf framvegis alfriðuð neðan nafla.
![]() |
Vill fara í tvær virkjanir í Þjórsá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Lausn Manson væri móðgun við mannkynið.
7.4.2012 | 01:20
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sigur á morgun....
6.4.2012 | 20:16
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Réttlæti Íhaldsins
6.4.2012 | 14:16
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Slade alive
5.4.2012 | 21:43
Tónlist | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vilja menn Dalvík á landsvísu?
4.4.2012 | 16:29
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Getur það verið?
4.4.2012 | 15:17
"Eigi skal höggva"
4.4.2012 | 09:40
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þá er þetta komið
4.4.2012 | 00:33
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Þorsteinn Már afhjúpar innrætið
3.4.2012 | 20:20
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Þetta eru stórmerkilegar upplýsingar
2.4.2012 | 21:26
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mistök?
2.4.2012 | 18:06
"Algjör skortur á skilningsleysi"!
2.4.2012 | 17:59
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Skjálfa þá aftur bein Björns Bjarna og félaga
1.4.2012 | 16:57
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sjálftaka eða gjaldtaka
31.3.2012 | 13:06
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)