Mulningur #73
19.4.2012 | 20:47
Axel, átta ára dóttursonur minn, var að hugga Benjamín, litla bróður sinn, sem lá veikur og þurfti að fá hita- og verkjastillandi stíl. Til að hafa ofanaf fyrir Benjamín á meðan stílnum var komið fyrir sagði nafni honum brandara.
Banani og sígaretta voru að tala saman.
-Veistu hvað mennirnir gera við okkur banana?- Sagði bananinn.
-Nei- sígarettan vissi það ekki.
-Fyrst rífa þeir utan af okkur húðina og síðan éta þeir okkur- sagði bananinn.
-Veistu hvað mennirnir gera við okkur?- sagði sígarettan.
-Nei-, bananinn vissi það ekki.
-Fyrst kveikja þeir í hárinu á okkur og svo sjúga þeir á okkur rassgatið!-
Mulningur | Breytt s.d. kl. 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kaþólska kirkjan spyrnir við fótum - ekki seinna vænna
19.4.2012 | 12:26
Þar kom að því að hans heilagleika páfanum í Róm er nóg boðið. Kaþólska kirkjan ætlar að láta sverfa til stáls og stöðva þá lausung og samfélagslegu sundrungu sem kynfrelsis- og jafnréttis hjal kvenna hefur leitt yfir kristið samfélag.
Þessi aðför kvenna að samfélagslegri stöðu karlmanna sem drottnara heimsins, kvenna og annarra dýra merkurinnar er gersamlega ósamrýmanleg kristinni trú og kristnum gildum og gróf aðför að mannlegri reisn.
Kirkjan stefnir að því koma konunni aftur fyrir á bak við eldavélina, þar sem skaparinn fann henni stað á sínum tíma eftir að hafa tálgað hana úr rifi Adams og gefið honum hana, til heimabrúks - að eilífu.
Amen.
![]() |
Vatíkanið ávítir róttækar nunnur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
LÍÚ - Mafía er það og Mafía skal það heita
19.4.2012 | 09:44
Ef marka má orð Adolfs Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Gullbergs ehf og LÍÚ foringja, þá treystir LÍÚ MAFÍAN sér ekki til að gera út, verði veiðigjaldafrumvarpið samþykkt.
Hætti þeir útgerð eiga þeir ekki annan kost en að skila veiðiheimildunum aftur. Þeim verður þá úthlutað að nýju til annarra aðila sem ekki hafa hland fyrir hjartanu. Þetta er kjörstaða, MAFÍAN hefur mátað sjálfa sig.
Sjómenn og landverkafólk á ekki að líða MAFÍUNNI að hún beiti þeim fyrir sig í hótunum og kúgunaraðgerðum gegn stjórnvöldum. Sjómenn og landverkafólk þurfa ekkert að óttast, það verður áfram gert út á Íslandi, þó LÍÚ MAFÍAN geri það ekki, og fiski verður áfram landað til vinnslu.
Adolf ætti að hella sér í skriftir og byrja á sinni eigin uppsögn, enda eflaust með lengstan uppsagnarfrest hjá Gullbergi.
![]() |
Yrðu að segja upp áhöfninni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (45)
Mér var gefið start - gömul saga og ný.
18.4.2012 | 21:06
Á fimmtudaginn í síðustu viku vaknaði ég rétt fyrir klukkan 7 árdegis, að ekki var allt með felldu. Ég þekkti strax einkennin, hjartslátturinn var farinn út og suður, rétt eins og Ástþór Magnússon slægi taktinn.
Ég tók þessu rólega, enda alvanur þessum uppákomum, brá mér undir sturtuna í lágadrifinu og skolaði af mér nætursvitann. Vakti síðan konuna og bað hana að aðstoða mig á heilsugæsluna. Hún skammaði mig fyrir að hafa ekki vakið sig strax, rétt eins og það hefði einhverju breytt.
Þegar við komum á heilsugæsluna var mér skotið að strax. Læknirinn lét taka af mér línurit og boðaði síðan vælubíllinn með það sama til að flytja mig á gáttadeild Landspítalans.
Þar reyndu læknarnir fyrst öfgafulla lyfjagjöf til að koma hjartanu í takt, þótt fyrri reynsla segði það til lítils. Enda fór það svo að stuttu eftir hádegi var mér ekið inn á sláturdeildina, rétt einn ganginn, ég tekinn af lífi og síðan endurræstur, með hjálp Landsvirkjunar.
Það gekk vel í þetta skiptið. Ég hrökk í taktinn strax við fyrsta skot, en samt hef ég verið eins og undin tuska síðan.
Það er mjög mismunandi hvernig ég kem undan þessu. Í eitt skiptið þegar ítrekuð skot þurfti til að koma mér í gang og brjóstkassinn á mér var eins og jarðýta hefði spólað á honum var ég samt á eftir stálsleginn, rétt eins og ekkert hefði gerst, ef frá voru taldir verkirnir í rifjunum.
Já - þetta er gömul saga og ný.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Vanhæfur, vanhæfari, vanhæfastur
17.4.2012 | 07:46
Aðferðafræðin við mat á hæfi og vanhæfi dæmenda í þessu máli og fleirum er giska brosleg. Sú skoðun meðdómarans, ein og sér, að gera ætti Breivik höfðinu styttri gerir hann ekki vanhæfan. Hann er vanhæfur af því að hann asnaðist til að hafa orð á því. Það er því okkar vitneskja um skoðun hans sem gerir hann vanhæfan, ekki skoðunin sjálf, sem slík.
Allir dómarar málsins kunna að hafa sömu skoðun, eða jafnvel enn harðari, en eru ekki vanhæfir, því þeir héldu sér saman. Ég ætla ekki að gera Norðmönnum upp skoðanir, en þeir eru örugglega ekki margir sem ekki óska Breivik til andskotans.
![]() |
Einn dómenda sagður vanhæfur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 07:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tími frú Romney ekki kominn og kemur ekki
16.4.2012 | 23:54
Skoðanakannanir benda eindregið til þess að í stað þess að Obama pakki niður, muni Romney og óþreyjufull spúsa hans aldrei taka upp úr töskum sínum í Hvítahúsinu.
![]() |
Segir Obama að pakka saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þetta er fótboltaandinn í hnotskurn
16.4.2012 | 07:38
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 07:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stundar LÍÚ tölvu og vírusárásir á þá sem skrifa gegn þeim?
15.4.2012 | 19:34
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hér má sjá hvernig Titanic sökk
15.4.2012 | 13:47
Hvernig vegnaði Afgönsku kvenréttindakonunni Fawzia Koofi, færi hún í framboð á Íslandi?
14.4.2012 | 16:17
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Enginn aur aflögu, því miður vinur!
14.4.2012 | 14:59
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
Græna helstefnan
14.4.2012 | 14:35
Að þekkja sinn vitjunartíma
13.4.2012 | 22:17
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Það er pottþétt...
13.4.2012 | 20:04
Þvílíkur barnaskapur
13.4.2012 | 12:35
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Fellir Þóra sitjandi forseta?
13.4.2012 | 07:34
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nöturleg fyrirsögnin
11.4.2012 | 17:57
Fréttir | Breytt s.d. kl. 17:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nei takk, ekki núna Ari Trausti!
11.4.2012 | 12:48
Bloggfærsla mánaðarins
11.4.2012 | 07:43
Hvað hafa aðrir frambjóðendur framyfir Þóru?
10.4.2012 | 17:24
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)