1. maí

Til hamingju með daginn, Íslendingar!

 

Fáninn eini

 


Ekkert hálfkák

Í stað þess að vera með eitthvert hálfkák og loka Laugarvegi ættu borgaryfirvöld að ganga alla leið,....og loka Reykjavík.

 

mbl.is Líst illa á lokun Laugavegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sendlingurinn, Bjarni litli Ben, hittir naglann á höfuðið - alveg óvænt

BjarvíðBjarni litli Ben, sendill Morgunblaðs- ritstjórans, telur einsýnt að gera þurfi ýmsar lagfæringar á þankagangi Íslenskra stjórnmálmanna varðandi efnahagsstjórnun, verði erlendur gjaldmiðill tekinn upp á Íslandi. En verði íslenska krónan notuð áfram, þá er að mati Bjarna, engin þörf á slíku og eðlilegast að hjakka áfram í sama gamla farinu.

Gengisfellingar hafa nefnilega verið eina „efnahagsstjórnin“ sem íslenskir stjórnmálamenn hafa kunnað, hvar sem þeir í flokki standa. Með upptöku erlends gjaldmiðils,  yrði þessi „töfralausn“ og eina lausn, skerðing lífskjara, frá þeim tekin. Þeir þyrftu þá að taka upp nýja efnahagshugsun,  svipaða því sem tíðkast meðal siðaðra þjóða.

Húsbóndi Bjarna hefur sagt honum , að það megi  ekki gerast, verði hjá því komist, gamla aðferðin sé  svo miklu auðveldari og þægilegri fyrir alla, nema almenning.


mbl.is Einhliða upptaka veikasti kosturinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömmi, enn og aftur á villigötum, eins og vænta mátti

ömmi2Ögmundur Jónasson inn- anríkisráðherra sannar enn og aftur hve alvarlega honum eru mislagðar hendur í nánast öllu sem upp í lúkurnar á honum kemur.  Ögmundur er manna naskastur að þefa uppi afturenda allra mála.

Að ætla að íhuga, hvað þá að framkvæma, þá hug- mynd að vopnaburður verði tekinn upp í ein- hverjum mæli innan lögreglunnar er alvarlegur dómgreindarskortur og er í raun risa skref í átt til almenns vopnaburðar lögreglunnar.

  


mbl.is Til í að skoða aukinn vopnaburð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arfur Framsóknar

Úr því formaður Framsóknarflokksins er hrokkinn í þennan gírinn ætti hann að fylgja þessum athugunum sínum eftir og kanna allan pakkann.

Sigmundur ætti í þessari sveiflu sinni að taka saman þann skaða sem Framsóknarflokkurinn hefur valdið þjóðinni á tæplega 100 ára sögu sinni. Arfur Framsóknar nemur örugglega nokkrum þjóðargjaldþrotum, á heildina litið. 

 


mbl.is Íslendingum allir vegir færir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Grindvíkingar

Það var ánægjulegt að lið Grindavíkur sigraði, en ég hefði samt alveg getað unnt Fljótsdalshéraði sigur. Það lið hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér.

Útsvar er tvímælalaust besta sjónvarpsefnið sem sjónvarpsstöðvarnar bjóða upp á þessi misserin.

Vonandi heldur þátturinn áfram á hausti komanda.


mbl.is Grindavík vann Útsvar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náriðlar

Eru náríðingar svo algengar og vinsælar í Egyptalandi, og þeim menningarheimi, að eðlilegt sé talið að heimila mönnum þetta óeðlisógeð með lögum. Hversu sjúkt er slíkt samfélag orðið?

Dæmigert fyrir Sjallana

Þeir reyna alltaf allt hvað þeir geta, að eigna sér mál annarra.

Hægri grænir hafa fundið breiðu bökin og boða græna skattastefnu - fyrir hátekjufólk

Hægri grænir , sem kalla sig flokk fólksins, boða græna skattastefnu – fyrir hátekjufólk. Markmiðið HG er helmings lækkun + á tekjuskatti hátekjufólks og auðmanna. Maður með 2.000.000,00 í mánaðartekjur, sem greiðir núna um 830 þúsund í tekjuskatt,...

Grágæsin TF-SLN

Uppáhalds fugl Blönduósinga, Grágæsin SLN, er komin heim og Blönduósingar að vonum kátir og segjast mjög elskir að fuglinum. Ég verð að viðurkenna að mér finnst það lítil elska til fuglsins að láta hann þvælast með þennan líka ekki smá hólk um hálsinn í...

Þeir sem ekki virða 1. maí, hafa enga sjálfsvirðingu

Það er þeim verslunareigendum til skammar sem ætla að hafa búðir sínar opnar 1. maí og virða ekki frídag starfsmanna sinna. Fólk sem nýtir sér opnun verslana og aðra þjónustu, sem að öllu jöfnu er lokuð 1. maí, ætti að spyrja sjálft sig, hví í ósköpunum...

Hverju hefur 84 ára bann við áfengisauglýsingum skilað?

Bann við áfengisauglýsingum hefur verið í gildi á Íslandi frá 1928. Nú á enn með nýjum lögum að herða ákvæði lagana til að tryggja bannið enn frekar. Bannið á áfengisauglýsingum er m.a. rökstutt þannig af allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis:...

Er þetta biðleikur eða hafa nátttröll kirkjunnar séð ljósið?

Það er vonandi til marks um breytta tíma innan kirkjunnar að kona skuli hafa náð kjöri til embættis biskups Íslands og vert að óska áhangendum hennar til hamingju með það. Það vekur undrun að hin íhaldssama og þröngsýna karllæga hugsun, sem einkennt...

Davíð felldi Golíat, nei afsakið, Geir

Samkvæmt fréttum Stöðvar 2 var það framburður Davíðs Oddsonar sem tryggði Geir sakfellinguna. Egó Morgunblaðsritstjórans lætur ekki að sér hæða. Það verður gaman að sjá hvernig unnið verður úr þessum tíðindum á

Er Lögmannafélag Íslands orðið að stjórnmálaflokki?

Brynjar Níelsson formaður Lögmannafélags Íslands virðist á góðri leið að breyta félaginu í pólitísk samtök eða jafnvel stjórnmálaflokk ef marka má yfirlýsingar og búkrokur hans í Mogganum. Það er einkennilegt að sjá formanninn kalla það lummulegt af...

VÁ !¨!

Er það virkilega Guðlaugur Þór, maðurinn sjálfur, sem neitar að upplýsa um tugmilljóna mútu- og undirborðs greiðslur til hans, sem segir þetta? Hversu óforskammaðir verða menn eiginlega? Verðandi Geir?

Klæðskerasniðinn dómur að einfeldningshætti Geirs

Niðurstaða Landsdóms er skýr. Heimskan er sýknuð af öllum ákærum og hvítþveginn en lauslega áminnt. Þessi sýknudómur er því þungur áfellisdómur yfir öllu stjórnkerfinu sem slíku. Að mati dómsins er sem sé ekki hægt að gera þær kröfur til stjórnmálamanna...

Engin nótt er svo löng að henni ljúki ekki

Þjóðin er smátt og smátt að ná áttum aftur og sjá í gegnum linnulaust lýðskrum stjórnarandstöðunnar, vafninginn Bjarna og þennan ........þennan....... bé mann, hvað heitir hann aftur, þetta Kögunar tengda kríli, hvað heitir það aftur? Nei fólk er að átta...

Úrslit kosninganna lítið fagnaðarefni

Þó þeir Sarkozy og Hollande fari tveir áfram í seinni umferð forseta- kosninganna í Frakklandi eru þeir ekki sigurvegarar forkosninganna. Sigurvegari forkosninganna er tvímælalaust Marine Le Pen frambjóðandi National Front. Líklegt verður að telja að...

Sennilega rétt

Það er sennilega rétt hjá Breivik að hann sé ekki geðveikur. En það er deginum ljósara að hann er ruglaður, snarruglaður! Það voru mistök hjá Norðmönnum að skjóta hann ekki á staðnum úti í Útey. Þeir súpa seiðið af því núna í þessum fjölmiðlasirkus sem...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband