Rekin úr nefndum?

Hefur það ekki enn borist upp á ritstjórn Moggans að það voru Atli og Lilja sem sögðu sig úr þingflokki VG og þar með sjálfkrafa úr nefndum á vegum þingflokksins? Atli og Lilja sögðu það sjálf á blaðamannafundinum, var Mogginn ekki með blaðamann þar?

Núna eru Atli og Lilja orðin íhaldinu gagnslaus til niðurrifs innan VG, því munu ekki líða margir dagar þar til þau verða tekin niður af átrúnaðar- og dýrkunaraltari Moggans og verða aftur á síðum blaðsins gömlu, þreyttu og einskisnýtnu kommarnir sem íhaldið telur ekki hlandi á eyðandi.

Þá er hætt við að Lilju og Atla verði kalt,  ein úti í horni, áhrifalaus og vonsvikin eftir að hafa pissað í skóinn sinn. Þó það hafi yljað um stundarsakir þá kólnar hlandið hratt þegar þau geta ekki  lengur baðað sig í skjalli og falsi íhaldsins.


mbl.is Rekin úr nefndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stuðningur Lilju og Atla við ríkisstjórnina eykst!

Tvíeykið Lilja og Atli hafa sagt sig formlega úr þingflokki VG, þingflokki sem þau hafa verið í virkri andstöðu við  og ríkisstjórnina sem var mynduð með þeirra samþykki.

Rétt eins og Pílatus þvoði hendur síar forðum þá kannast Lilja og Atli ekki lengur við aðild sína að  stjórnarsáttmálanum,  sem þingflokkur VG samþykkti í fagnaðarvímu yfir myndun fyrst hreinu vinstristjórnarinnar á Íslandi.

Atli segist maður málamiðlana, svona  er hans málamiðlun. Lilja tilgreindi, sem eina af ástæðum úrsagnar að ríkisstjórninni hefði mistekist að koma á kynjaðri hagstjórn á Íslandi!

Lilja og Atli sögðu bæði að sterklega hefði komið til greina að segja af sér þingmennsku, en þar sem þau ættu svo brýnt erindi á Alþingi þá hefði það ekki verið valkostur.

Þau ætla framvegis að styðja ríkisstjórnina í góðum málum, þannig að stuðningur þeirra við ríkisstjórnina hefur aukist eftir úrsögnina, ef eitthvað er. Hvort það er fagnaðarefni er önnur saga.

  


mbl.is Ætla ekki að styðja stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vertíðin er hafin

Þá er fermingarvertíð prestanna hafin. Árlegar fermingar eru prestunum í fjölmennum sóknum sem heilög vertíð, Guðsgjöf nánast!  Það er bitur reynsla margra að þessir  ríkisstarfsmenn,  þjónar kirkjunnar, hreyfi vart legg né lið í þágu safnaðarbarna sinna, nema fá fyrir það sérstaklega greitt. Þó er það vafalaust misjafnt eins og prestarnir eru margir.

250 börn fermast í Grafavogskirkju þetta árið að sögn eins prestsins í þeirri sókn. Gjaldtaka fyrir hvert fermingarbarn er samkvæmt gjaldskrá Innanríkisráðuneytisins fyrir aukaverk presta, kr. 9.300,- sem gerir 2.325.000,-  í fermingabónus fyrir þá kirkju eina, þetta árið, þá eru önnur prestverk ótalin í þeirri sókn.

Ég ætla að leyfa mér að efast um að þessi opinbera gjaldskrá ráðuneytisins sé alfarið ráðandi við gerð reikninga. Nýlega heyrði ég í útvarpi frásögn manns sem fékk reikning fyrir útför náins ættingja. Þar var, auk annarra þátta, rukkað sérstaklega 8000,- kr fyrir akstur prestsins í sambandi við jarðaförina. Þetta var þrátt fyrir að reikningsgreiðandinn hefði sjálfur sótt prestinn og ekið honum heim að athöfninni lokinni. Þegar hann spurðist fyrir hverju þetta sætti var svarið að um staðlaðan reikning væri að ræða!

Hvað ætli margir syrgjendur greiði slíka staðlaða reikninga án athugasemda?

Hvað ætli stórt hlutfall af þessum aukagreiðslum til presta rati inn á skattaskýrslur? Hvað ætli margir gefi skattinum upp þessar aukagreiðslur,  sem ég held að séu oftar en ekki  reikningslaus viðskipti.


mbl.is Fermt í Grafarvogskirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Marklaus undirskriftasöfnun?

Þegar farið er inn á undirskriftasöfnunina  börn.is þá er beðið um nafn, kennitölu, tölvupóstfang og póstnúmer.

A.h!, hugsaði ég með mér, úr því beðið er um póstnúmer þá er meiningin að útiloka að fólk utan Reykjavíkur taki þátt í þessari undirskriftasöfnun!

Ég ákvað samt að prufa, fyllti út fullt nafn og rétta kennitölu að sjálfsögðu, ásamt póstnúmerinu 240 í Grindavík,  ýtti á enter og viti menn þetta rann í gegn.

Ég er þar með bókaður sem fullgilt foreldri í Reykjavík, æfur út í áætlanir borgarstjórnarinnar til sparnaðar í rekstri.

Ég fer þess á leit að síðan fjarlægi nafn mitt af henni og vandi vinnubrögðin.

Því má bæta við að þó söfnunaraðilar muni þurrka út öll póstnúmer utan Reykjavíkur, telji þeir þau ekki einfaldlega góðra gjalda verð,  má með þessu forriti hanna nánast hvaða nafn sem er með „réttri kennitölu“  við hvaða póstnúmer í Reykjavík sem verkast kann.

Spurningin er, verður listinn sannreyndur?  

 

 


mbl.is 719 undirskriftir komnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki spurning....

Simonaað fleiri en Simonu, "verkjar" í þessi brjóst!

.

.

 


mbl.is Brjóstunum að kenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virkilega sjúkt

Þegar Browning M1911 handbyssan hefur fengið þann virðingarsess að vera opinber byssa Utah fylkis þarf hún þá ekki að vera til á hverju heimili og minnst ein á mann?

Hvað kemur  næst hjá þeim í Utha, fylkismorðinginn eða fylkisnauðgarinn?

 


mbl.is Utah velur ríkisskotvopn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílík reisn!

Ætlar því ofbeldi, sem framið var á Breiðavíkur börnunum aldrei að ljúka. Lagt var upp með í uppgjöri þessa leiðindamáls að einskonar „þjóðarsátt“ yrði gerð um mannsæmandi bætur til þolenda ofbeldis og ranginda þessa alræmda...

Mistök eru ekki valkostur

Uppáhaldsatriðið mitt úr myndinni Apollo 13 ...og annað ekki verra

Landeyja-lotterí

Siglingastofnun ætlar að birta spár um næsta líklega opnunardag Landeyjahafnar á sínum vef og líka á vef Herjólfs . Þetta er gert af ósk Eyjamanna, sem finnst þeim ekki berast fréttir af lokun hafnarinnar nægjanlega ört. Höfnin er lokuð í dag, hún var...

Hvenær má og hvenær ekki?

Fráleitt og seint verð ég talin stuðningsmaður einræðisfanta á borð við Gaddafi Líbýueiganda. En stöldrum aðeins við og horfum til baka, hvað er að gerast í Líbýu? Er ekki hafin bylting í Líbýu? Síðan hvenær hefur það verið talið óeðlilegt að yfirvöld í...

Mulningur #62

Hannes, sem var sköllóttur og með staurfót fékk boð á grímuball frá fyrirtækinu sem hann vann hjá. Hvernig sem Hannes reyndi að upphugsa búning komst hann ekki að neinni niðurstöðu. En þá datt Hannesi í hug að ráðfæra sig við búningaleigu og hann settist...

Misskilin atkvæði?

Ég hef látið hafa eftir mér á blogginu að ég telji það ótækt að sjómenn á frystitogurum sem fóru á sjó áður en utankjörfundar- atkvæðagreiðslan hófst 16. mars og koma ekki í höfn fyrr en að loknum kjördegi, séu beinlínis sviptir atkvæðisrétti. Það hef ég...

Jón Valur er manna vísastur....

....að koma hér á eftir með sína hefðbundnu klisju, við þessa frétt, að allar skoðanakannanir, sem ekki sýni klára andstöðu við Icesave samninginn séu ýmist keyptar eða falsaðar. Svo fylgir hann því úr hlaði með þeim fullyrðingum og ranghugmyndum að...

Segjum við Líbýu stríð á hendur?

Boðað hefur verið til utandagskrárumræðu á Alþingi á morgun um ástandið í Líbýu, væntanlega til að leiða það leiðindavandamál til lykta eða finna á því varanlega lausn. Í umræðunni munu vísdómsbrekkurnar á Alþingi eflaust segja Gaddafi til syndanna og...

Leggur vísindakirkjan línurnar?

Þessi uppeldis uppskrift er væntanlega forskrift vísinda- kirkjunnar að góðu barnauppeldi, hvar frú Holmes og Tóma Krúsin, maður hennar, eru virkir og digrir limir. . . .

Mulningur #61

Hannes fékk páfagauk í afmælisgjöf en komst fljótt að því að gaukurinn var með afbrigðum skapvondur og orðljótur. Hannes gerði allt sem honum datt í hug til að venja fuglinn af þessum ósið, hann var sjálfur ekkert nema kurteisin og við fuglinn og spilaði...

Íslenskt carnival í Vín

Jón Gnarr gerir það ekki endasleppt. Hann er þessa dagana í Austurríki að tala endanlega niður álit þarlendra á mörlandanum. Það er mjög misráðið af Jóni og öðrum stjórnmálamönnum Íslenskum að tala niður framtíð Íslands verði Icesave fellt. Slíkt tal...

Ameríski draumurinn

Það vantar ekki að Bandaríkjamenn hafi lausnirnar á takteinum til „úrbóta“ á helstu þjóðarskömm og ómenningu þess annars ágæta samfélags. Það virðist einu gilda hversu hryllilegar og ógnvekjandi fréttir berast af reglubundnum byssubardögum og...

Ætla Jóhanna og Steingrímur að stela 192 milljónum?

Ef þú heldur það, lestu þá þetta .

Hver á peningana?

Þess er krafist af saksóknara að Baldur Guðlaugsson fyrrverandi ráðuneytisstjóri verði dæmdur til tveggja ára fangelsis fyrir innherjasvik og að „hagnaður“ hans af sölu hlutabréfa hans í Landsbankanum rétt fyrir fall bankanna, samtals 192...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband