...og koma svo No Borders
29.7.2011 | 17:25
Það verður spennandi að sjá hvaða rök og fullyrðingar leynisamtökin No Borders nota þegar þau krefjast þess að þessi maður fái hér hæli án rannsóknar á hans fortíð.
Manns sem byrjaði landvist sína með lygi og lögbroti þegar hann reyndi að villa á sér heimildir með framvísun á fölsuðu vegabréfi.
.
.
Lítið á könnunina hérna til vinstri
![]() |
Stöðvaður með fölsuð skilríki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hugsanlega er svindlað á okkur, en við megum ekki vita hverjir gera það
29.7.2011 | 14:19
Í rassíu sem Neytendastofa gerði til að kanna vigtar reyndust 6 af 14 fiskbúðum og 10 af 19 matvælaframleiðendum vera með vogir sem ekki voru eins og til er ætlast. Hjá þessum tveim greinum voru 42,9% og 52,6% með ógildar vogir. Aðrar aðilar sem voru skoðaðir stóðu sig mun betur.
Hagsmuni hverra er Neytendastofa að gæta þegar svona rassíur eru gerðar? Hagsmuni neytenda, dettur manni helst í hug.
En, ef svo er, af hverju liggur Neytendastofa á því eins og ríkisleyndarmáli hverjir þessir bjálfar eru? Ég hefði haldið að hagur neytenda væri ekki hvað síst fólgin í því að geta varað sig á þeim sem hafa hugsanlega rangt við í viðskiptum.
Ekki er nokkur vafi á því að svörtu sauðirnir myndu passa betur að hafa þessa hluti í lagi, væru neytendur upplýstir um hverjir þeir eru.
Mældu rétt strákur er greinilega enn í fullu gildi.
Minni á könnunina hér til vinstri.
![]() |
Víða pottur brotinn í vigtun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ný stjórnarskrá
29.7.2011 | 10:19
Ég hef sett inn skoðanakönnun hér til vinstri.
Spurt er: Hvernig líst þér á frumvarpið að nýrri stjórnarskrá?
Könnunin verður opin í sólarhring.
Vinsamlegast takið þátt.
![]() |
Stjórnarskrá verði breytt umtalsvert |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tökum höndum saman
28.7.2011 | 12:31
Mér er bæði ljúft og skylt að vekja athygli á þessari síðu VG sem er netdagblað í Noregi.
Hér geta allir sýnt samstöðu og samhug með Norsku þjóðinni og aðstandendum fórnarlambanna á Útöya og jafnframt fyrirlitningu á slíkum voðaverkum.
Tökum í hönd næsta manns og réttum hina höndina út til næsta manns. Myndum eina allsherjar keðju friðar og samhugs, segjum nei við ofbeldi.
Aðeins þarf að klikka á Klikk her for å styrke lenken og skrá sig inn, með nafni og landi.
Tæplega 1,2 milljón manna, kvenna og barna hafa þegar myndað hlekki í keðjunni.
Slóðin á síðuna er: http://www.vg.no/nyheter/innenriks/oslobomben/lenke.php
Látið þetta berast sem víðast!
![]() |
Breivik yfirheyrður á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þarf bakkelsið í ferminga- og afmælisveislum að koma úr vottuðu eldhúsi?
28.7.2011 | 08:33
Fátt er betra en heimabakað bakkelsi með kaffitári eða mjólk og enginn hefur fram að þessu leitt hugann að öðru en það væri bæði hollt og gott.
En reglugerðirnar láta ekki að sér hæða. Eins og komið hefur fram í fréttum er það skjalfest orðið að jafnvel besta heimabakaða bakkelsið verður með öllu óhæft til manneldis, sé gjald tekið fyrir. Allur fjáröflunar bakstur skal fara fram í vottuðu eldhúsi, ekkert minna.
Það er í sjálfu sér ekki nema gott eitt um þannig reglugerð að segja, enda tilgangurinn vafalaust sá að Pétur og Pála væru ekki eftirlitslaust að framleiða brauð og kökur til sölu í verslunum, árið um kring.
En skörin er heldur betur farin að færast upp í bekkinn, þegar embættismenn horfa aðeins á kaldan textann í lögum og reglugerðum og útfæra steinrunna viskuna yfir allt og alla.
Það hefur örugglega ekki verið markmiðið með þessum reglum að drepa niður starfsemi góðgerðafélaga sem afla fjár með smá kökubakstri einu sinni á ári.
Þá vaknar sú spurning hvort fólk megi eiga von á eftirlitsmönnum heilbrigðiseftirlitsins í afmælis- og fermingarveislur til að kanna hvort brauðið og kökurnar séu vottaðar?
Í slíkum veislum fer fram sala á veitingum, gjafir, hvort heldur eru í lausum aurum eða bundnu fé, eru sannarlega endurgjald fyrir veitingarnar.
En með því að afþakka gjafir, verður óhæfa heimagerða bakkelsið með það sama hin vandaðasta vara og hæf til manneldis.
Þetta rugl þarf heilbrigðisráðherrann að laga, enda ekki heilbrigt.
![]() |
Múffurnar lutu í lægra haldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Látum ekki okkar (drasl) eftir liggja, þessa helgi
27.7.2011 | 17:30
Verslunarmannahelgin er framundan, hjá mörgum hefst hún í kvöld eða á morgun.
Íslenskt veður er óútreiknanlegt og hefur gert mörgum manninum marga skráveifuna þessa helgi.
En samt sem áður storma þúsundir landsmanna á vit ævintýranna og óvissunnar um þessa helgi, ár eftir ár.
Góða skemmtun Íslendingar, hvernig sem veðrið verður.
Komið heil heim og auðvitað með allan farangurinn, látið ekki ykkar dót eftir liggja!
![]() |
Margir á flugi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Ímyndarþvottur
27.7.2011 | 10:59
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Munurinn á hryðjuverkamanni og hryðjuverkamanni
25.7.2011 | 15:13
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
Ófreskjan frá Utøya vill fá að halda áfram sínum óhæfuverkum
25.7.2011 | 11:38
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Það er vandaverk að svindla svo vel fari
24.7.2011 | 12:26
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það þyrfti að kíkja undir „húddið“ á allmörgum íslenskum bloggurum
23.7.2011 | 16:55
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Þjóðarsorg á Norðurlöndum
23.7.2011 | 08:30
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 08:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Svarið gæti legið í þínum eigin garði Guðlaugur.
22.7.2011 | 22:23
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Sýnum samhug.
22.7.2011 | 20:34
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sönnum sekt áður en við dæmum
22.7.2011 | 15:27
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (53)
Þið verðið að skoða þetta
22.7.2011 | 00:25
Tónlist | Breytt s.d. kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Frábær fyrirsögn á Vísir.is
21.7.2011 | 18:59
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hata Gyðinga
21.7.2011 | 09:50
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
Ber Sam frændi ábyrgð á hvarfi Guðmundar og Geirfinns?
21.7.2011 | 02:13
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 02:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Við þessu er aðeins eitt svar
20.7.2011 | 15:36
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)