Sigmundur þarftu ekki að hugsa þetta upp á nýtt?

Formaður Framsóknarflokksins segir framboð flokksins hafa styrkst í Reykjavík við brotthvarf sitt þaðan. Jafnframt segir hann að framboð flokksins í N-Austurkjördæmi styrkst við komu sína þangað!

Þetta er undarleg jafna jafnvel á Framsóknarvísu.

Ef Kögunarstrákurinn telur sig hafa verið dragbít á flokkinn fyrir sunnan en vera lyftistöng fyrir norðan, þá er ekki hægt að skilja orð hans öðruvísi en að meðframbjóðendur hans fyrir norðan séu ekki merkilegir pappírar.


mbl.is „Stóru tækifærin liggja hér“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Rétt útkoma" á röngum forsendum

Allt virðist unnið með öfugum klónum í framboðsmálum Framsóknar. Jónína Ben er hinsvegar afar ánægð með uppstillingu flokksins í Reykjavík þó niðurstaðan hafi verið knúin fram á röngum forsendum, að hennar mati.

Svo má súru skyri venjast að gott þyki.


mbl.is Sátt við listann en ekki aðferðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geymt en ekki gleymt

Fátt bendir til þess að hlutur Framsóknarflokksins verði stór í næstu kosningum. En samt nægjanlegur til að tryggja flokknum hækjuhlutverkið í næstu ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum.

Það ríkisstjórnarsamstarf mun hafa fjölmörg lík í lestinni. T.a.m. verða bolabrögð formanns Framsóknar að ryðja sér inn í N-Austurkjördæmi á kostnað Höskuldar Þórhallssonar, geymd en ekki gleymd eftir kosningar.

Þessi undarlega útkoma segir nákvæmlega ekkert um vinsældir Kögunar krakkans í kjördæminu og eiga sér eðlilegar skýringar. Almennir framsóknarmenn gátu auðvitað ekki hugsað sér að gera flokknum þá sneypu að endursenda Sigmund með eplakinnar aftur suður yfir heiðar. Því brugðu fjölmargir á það ráð að styðja Sigmund tímabundið, þvert á hug sér og með óbragð í munni.

Hætt er við að þetta lík verði dregið upp úr lestinni þegar verst gegnir til að koma höggi á litla Kögunar strákinn. Það gæti allt eins orðið til þess sprengja ríkisstjórn þessara pöruflokka.

Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott.


mbl.is Höskuldur verður í öðru sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki úr háum söðli að falla

Það væri nú ljótan, ef orðspor og virðing þingsins biði hnekki við það uppátæki Lúðvíks og Björns Vals að nefna orðið málþóf í sölum þingsins og falli jafnvel úr 10% í 9 eða jafnvel 8%.

Ég skil fullkomlega að Illuga sé misboðið, hann ber eðlilega virðingu þingsins fyrir brjósti, eins ötullega og hann hefur unnið að því að halda henni uppi.

  


mbl.is Þingmenn báðust afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sátt um nauðgun

Konan hefur þá komið fram vilja sínum við Strauss-Kahn og fengið það - sem hún stefndi að alla tíð, peninga og mikið af þeim.

Ég var svo einfaldur að halda að kona sem beitt er kynferðisofbeldi gæti aldrei orðið sátt við kvalara sinn. En peningar virðast hafa þann töframátt að lina sárauka gráðugra.

Svo er það spurningin hvort það hafi, eftir allt saman, verið fórnarlambið í málinu sem þurfti að borga sig frá því?


mbl.is Sátt milli Strauss-Kahn og Diallo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herjólfur dreginn í slipp?

„Herjólfur var dreginn í slipp í Hafnarfirði í gær...“ segir í fréttinni. Herjólfur er tveggja véla og tveggja skrúfu skip. Þannig útbúin skip verða ekki ósjálfbjarga þótt önnur vélin eða skrúfan verði óvirk.

 

Sennilegast sigldi Herjólfur fyrir eigin vélarafli í slippinn og hinn meinti dráttur þangað er bara hefðbundið bull í mbl. blaðamanni, sem þekkir hvorki haus né sporð á því sem hann skrifar um.

 

 


mbl.is Eitt blaðanna brotið af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óskiljanleg ákvörðun - veikleikamerki

Ákvörðun Hönnu Birnu er undarleg og í hróplegri andstöðu við niðurstöðu prófkjörsins um helgina og kröfu kjósenda flokksins um breytingar, sem vart varð misskilin. Hanna Birna hefur með þessari ákvörðun virt að vettugi kröfu flokksmanna að hún taki sér...

Hanna Birna er orðin leiðtogi Sjálfstæðisflokksins þó Bjarni sé enn formaður að nafninu til

Engum blöðum er um það að fletta að Hanna Birna Kristjánsdóttir kom, sá og sigraði í þessu prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hún er með glæstum sigri sínum þar með orðin leiðtogi Sjálfstæðismanna á landsvísu. Það hljóta allir að sjá og viðurkenna,...

Léttur húmor í svartnættinu

Það vakti athygli og rataði í fréttir í gær að verjandi eins sakbornings í stóra ofbeldismálinu dottaði í réttarsalnum. Vinnufélagar lögfræðingsins hrekktu félaga sinn ansi skemmtilega þegar hann mætti til vinnu í morgun og hans beið uppbúið...

Bjarnargreiði við frambjóðendur

Kappsamur bloggari , sem segist ekki vera í Sjálfstæðisflokknum eða kjósandi hans, finnur samt hjá sér knýjandi þörf til að mæla sérstaklega með og mæra ákveðna frambjóðendur í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, umfram aðra. Það er afar...

Röng aðkoma

Eru ekki rangar starfsstéttir að höndla um mál þessara meindýra? Af hverju er lögreglan og dómskerfið að eyða dýrmætum tíma sínum í mál sem klárlega ætti að vera á starfsviði meindýraeyða?

Æ,æ,æ....

....æ, æiiiii, hvað þetta er sárt! Mig verkjar...

Ísrael liggur í vörn - staðan er 136 : 5, þeim í vil.

Viðræður standa yfir um vopnahlé á Gaza, en á meðan láta Ísraelar sprengjum rigna yfir svæðið í kapp við tímann að klára það sprengjumagn sem þeir höfðu fyrirfram ákveðið að notað yrði á Palestínskar fjölskyldur í þessari umferð. Þegar Ísraelar hafa...

Augnablikið fangað

(Margmiðlunarefni)

Ekkert er smátt í henni Ameríku

Kanar hugsa stórt, allt hjá þeim er fyrirferðamikið og í miklu magni. Gæði matar eru t.d. undantekningarlítið mæld í magni. Matgæðingi einum langaði mikið til að bragða á mannakjöti og skipulagði því slíkan málsverð og útvegun hráefnis. Gæðingurinn...

Hjörleifur, einstakur maður - alltaf með öfugum formerkjum

Þegar Hjörleifur Guttormsson talar um fylgistap í flokka ættu menn að leggja við hlustir. Því enginn annar kemst með tærnar þar sem Hjörleifur hefur hælana í að reyta af sér fylgi og losa flokkinn sinn við kjósendur. Þegar Hjörleifur kom fyrst á þing...

Undarleg er hún mannskepnan

Hvað er það sem kemur manni til að vilja kvænast konu eins og þessari svörtu ekkju, þar sem hún situr í fangelsi, hvar morðkvendið mun væntanlega dvelja um ókomin ár? Þessi undarlega hegðun er hreint ekki einsdæmi, eins og ætla mætti. Það er algengt...

Hver er þá skýringin?

Borgarstjórinn í Reykjavík hefur lagt óeðlilega mikið á sig í gegnum tíðina til að sýna að hann sé ekki haldinn hommafælni. Þar sem borgarstjórinn segist ekki vera haldin hommafælni, þá er augljóslega einhver önnur ástæða fyrir óstjórnlegum fíflaskap...

Leitt ef við missum af þessum heimsendi eins og öllum hinum

Jarðarbúar geta andað léttar. Ekkert er hæft í þeim staðhæfingum að heimsendir verði laust eftir hádegið þann 21. desember n.k. Himnaför Jóns Vals, Mofa og fáeina annarra réttlátra er því frestað um óákveðin tíma ásamt vítis för minni og restar. Þetta...

Verður villiköttum bannað að veiða rjúpu í landi Kletts?

Landeigendur á Kletti í Geiradal banna alla skotveiði á sínu landi. Ekki hefur það bjargað rjúpunni frá því að hverfa sporlaust. Eftir ítarlega rannsókn landeigenda og Náttúrufræði- stofnunar eru uppi grunsemdir um að veiðiglaðir villikettir séu valdir...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband