Undarleg hugmynd
3.10.2012 | 20:30
Sú hugmynd er ekki ný af nálinni að Arnold Schwarzenegger sé framtíðar forseti Bandaríkjanna og henni skýtur upp annað veifið, þótt öllum ætti að vera ljóst að hugmyndin er andvana fædd.
Arnold karlinn getur aldrei orðið forseti BNA. Ástæðan er einföld, hann uppfyllir ekki það ófrávíkjanlega skilyrði að vera fæddur í Bandaríkjunum. Arnold, er eins og flestir vita fæddur og uppalinn í Austurríki.
Þetta ættu Repúblikanar, aðdáendur Svartahneggs að vita, svo ákaft sem þeir hafa haldið því fram að fæðingarvottorð Obama forseta sé falsað, að hann sé fæddur erlendis en ekki á Hawaii og því ekki réttkjörinn forseti.
![]() |
Verður Schwarzenegger forseti? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íslendingar eiga ástandið skilið
2.10.2012 | 16:01
Europris ætlar að hætta verslunarrekstri á Íslandi. Verslunin auglýsir því veglega rýmingarsölu. Og hvað gerist? Í stað þess að þjóðin sýni þeirri ákvörðun fingurinn, hundsi þessa útsölu og segi Europris þannig að ætli þeir að hverfa úr verslunarrekstri og samkeppni hér á landi þá geti þeir bara átt sinn lager, þá ryðst landinn sem aldrei fyrr fram og inn um dyr Europris, í von um smá hagnað, til að auðvelda þeim að hverfa frá samkeppni á Íslandi og stuðla þannig til framtíðar að hærra vöruverðverði.
Þannig vill til að þeir sem gráðugt streyma inn um dyr Europris, í von um skjótfenginn stundargróða eru þeir sömu og ekki náðu upp í nef sér af hneykslan yfir græðgisvæðingu þjóðfélagsins sem olli bankahruninu, en það er auðvitað löngu gleymt.
Svo koma þeir sömu og núna streyma með gróðann sinn út úr Europris, fram síðar og óskapast yfir fákeppni í verslunarrekstrinum á Íslandi og verðlaginu.
Þangað til Íslendingar hætta að hugsa aðeins um eigið rassgat og stundarhagsmuni, þá eiga þeir það efnahagsástand sem hér ríkir svo sannarlega skilið.
![]() |
Erill á rýmingarsölu Europris |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Það skyldi þá ekki vera...
2.10.2012 | 13:54
...að einmitt þannig sé málið gegn Gunnari Andersen vaxið og tilorðið!
![]() |
Helgi sótti um ásamt Gunnari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Er Framsókn að klofna í frumeindir fyrir hugleysi formannsins?
1.10.2012 | 18:09
Hugleysi formanns Framsóknarflokksins að hlaupast undan ábyrgð og flýja frá kjördæmi sínu í Reykjavík og ætla með frekju að troða sér í öruggt sæti í Norðausturkjördæmi og ryðja þeim frá sem hafa með vinnu og elju skapað sér þar sess, veldur vaxandi titringi í flokknum.
Þessi blauða tilraun formannsins að tryggja framtíð eigin þjóhnappa á þingi, á kostnað samherja, er til þess eins fallin að kljúfa Framsóknarflokkinn og hefur í raun þegar gert það.
Spurningin er aðeins hve alvarlegur klofningurinn verður, hvort flokksbrotin muni sjáist með einföldu stækkunargleri eða hvort til þess þurfi smásjá eða öflugri tæki.
![]() |
Telur framboðið vera dómgreindarbrest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Að vita ekki lengra lim sínum
30.9.2012 | 22:27
Þessi Breska getnaðarlimarannsókn gleður örugglega fáa meira en Íslenska rasista. Einar Gunnar Birgisson, og aðrir slíkir moðhausar, sem efast ekki andartak um mikilfengleika og yfirburði hins hvíta norræna eðalkynstofns yfir aðra kynstofna, hljóta að ærast af fögnuði.
Þeir hafa örugglega hópum saman, eftir lestur þessarar fréttar, rótað í skúffum og skápum í leit að tommustokk eða málbandi og í framhaldinu brugðið örvandi spólu í vídeótækið og kannað hvort arískur manndómurinn stæðist mál. Einhverjir munu eflaust miklast af eigin mælingum og segja limaburð sinn staðfesta yfirburð hvítra Íslendinga umfram aðra kynstofna.
En ég hygg samt að þeir verði mun fleiri sem þurfi, þegar þeir mæta á næsta ársfund Íslenskra rasista, að kríta liðugt þennan tiltekna aríska yfirburð sinn.
Ársfundur Íslenskra rasista mun eðlilega fagna þessari rannsókn og segja hana óhrekjanlega sönnum um yfirburði hins hreinræktaða Íslenska stofns. Hinsvegar mun ársfundurinn eðlilega koma sér hjá því að álykta sérstaklega um þá niðurstöðu rannsóknarinnar, að a.m.k. fjórum lituðum og "óæðri kynstofnum" hafi verið úthlutað meiri manndóm en Íslenska aðlinum. Óopinberlega mun þetta sagt vera tímabundna stökkbreytingu og frávik í þróuninni.
Sköpunarsinnar innan rasistasamtakana eru eðlilega ekki sáttir við þá skýringu, því eins og þeir vita manna best er allt fastmótað, um aldir alda, eins og skaparinn gekk frá því, þróun er ekki inn í myndinni.
![]() |
Íslendingar stærstir í Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
Allt er í heiminum hverfult
29.9.2012 | 18:43
Svo er að sjá sem þetta fyrrum trúlausa kommúnistaríki sé orðið kaþólskara en páfinn í trúaröfgum.
![]() |
Opinber rannsókn á söngleik |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvar er ritstjórn mbl.is núna?
29.9.2012 | 14:31
Heilbrigðismál | Breytt 30.9.2012 kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (118)
Leikur Eiður Smári með Grindavík á næstu leiktíð?
28.9.2012 | 13:28
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
Sannleikurinn skilgreindur sem óvinur Bandaríkjanna
28.9.2012 | 10:50
In memoriam
27.9.2012 | 16:22
Hvernig er hægt að handleika það sem ekki er til?
27.9.2012 | 13:17
IBM Romney
26.9.2012 | 23:27
Spaugilegt | Breytt 27.9.2012 kl. 00:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hvar á að draga línuna Jón Valur Jensson - Við hvaða aldur nemenda mega kennarar byrja að riðlast á þeim?
25.9.2012 | 12:25
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
Litli ríkisendurskoðandinn!
25.9.2012 | 00:03
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Aflúsun
24.9.2012 | 09:29
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Sigmundur Davíð er orðin fullsköpuð Framsóknarmaddama
22.9.2012 | 19:25
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Gylfi er með þetta að venju - eða þannig.
21.9.2012 | 11:38
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Skolað út úr Framsókn
21.9.2012 | 10:34
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Tækjaátrúnaður
21.9.2012 | 08:44
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 09:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nektarmynd af Kate Middleton á brúkaupsdaginn
20.9.2012 | 10:15
Fréttir | Breytt s.d. kl. 10:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)