Kaþólska kirkjan fer af sporinu

Þó ekki væri nema brot af því satt sem sagt er um þennan Jimmy Savile, þá hefur hann verið sannur skíthæll og djöfull í mannsmynd. Athygli hlýtur að vekja hve ákveðin og snöfurleg viðbrögð kaþólska kirkjan sýnir í málinu. Kaþólska kirkjan á Englandi hefur, þegar á fyrstu stigum rannsóknar málsins, beint þeim tilmælum til páfa að Savile verði sviptur heiðursorðu kirkjunnar.

Hér sýnir kaþólska kirkjan allt önnur og sneggri viðbrögð en í svipuðum málum sem komið hafa upp innan hennar eigin raða. Í þeim málum virðast enn ráða helstu dyggðir og lögmál kaþólsku kirkjunnar, leynd, undanfærslur, blekkingar og hrein ósannindi, verði þeim við komið.

 
mbl.is Kirkjan vill svipta Savile heiðursorðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Karlrembu Samband Íslands

Það hefur aldrei verið ljósara en í dag að kvennalandslið Íslands í knattspyrnu stendur karlalandsliðinu ljósárum framar í getu og frammistöðu, en að samaskapi jafn aftar að öllum aðbúnaði og stuðningi.

Það er komin tími til að KSÍ – Karlrembu Samband Íslands- manni sig upp og gyrði í brók. Í stað þess, í eigin auglýsingaskini og til þess að fela eigin skömm, að gauka málamynda bónus að kvennalandsliðinu fyrir glæsilegan árangur þá viðurkenni þeir einfaldlega að straumhvörf hafi orðið í Íslenskri knattspyrnu og geri í framhaldinu það eina rétta.  

Sem er að alger umskipti verði á þeim fjármunum sem til landsliðanna renna, konurnar fái þau framlög að sem karlarnir fá núna og öfugt. Þannig og aðeins þannig verður réttlæti náð. – Það er að segja ef það er markmið KSÍ að vera raunverulegt Knattspyrnu Samband Íslands en ekki eitthver karlrembu hagsmunaklúbbur.


mbl.is Skipta á milli sín 10 milljónum króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkalýðsfélag Akraness sýnir tennurnar

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness stendur í lappirnar, það mættu fleiri gera.

 

mbl.is Hóta úrsögn úr lífeyrissjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi stendur alltaf fyrir sínu

.

 


Þessum kjánum er ekki viðbjargandi

Aðeins þrír dagar eru frá því að þjóðin samþykkti með 2/3 greiddra atkvæða að tillögur stjórnlagaráðs yrðu lagðar til grundvallar nýrri stjórnarskrá.

Nú rísa upp á afturlappirnar nokkrir fulltrúar stjórnarandstöðunnar, stútfullir af hroka og stærilátum og láta  eins og  þeir heyri ekki rödd þjóðarinnar og ekki í fyrsta skipti.

Þeir segja það núna að miklu betra sé að breyta núverandi stjórnarskrá! Sem undarlegt þó ekki væri fyrir annað en það að þessir sömu félagslegu siðblindingjar  sögðu fyrir kosningarnar, þegar þeir hvöttu fólk ýmist að sitja heima eða að segja nei, að stjórnarskráin væri slíkur hamingjupappír að þar yrði nánast engu breytt til hins betra.

Skilaboð kosninganna eru skýr, þjóðin vill nýja stjórnarskrá en ekki fleiri bætur og viðbyggingar á núverandi nítjándu aldar stjórnarskrá, sem sett var til bráðabrigða við lýðveldisstofnunina.

Alþingi hefur ekki umboð til annars en að framfylgja þjóðarviljanum í stjórnarskrármálinu.


mbl.is Farsælla að breyta núverandi stjórnarskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram Ísland

Þjóðin hefur talað og gefið Sjálfstæðisflokknum, sem kallaði eftir stuðningi kjósenda við eiginhagsmunaklíkur landsins, langt nef.

 
mbl.is 73,7% sögðu já í Reykjavík norður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það bar við um þær mundir að boð komu frá Bjarna Ben keisara að lýðnum bæri að hundsa eigin hagsmuni og hafna nýrri stjórnarskrá til að verja sérhagsmunapakkið.

Frá því að spilaborg auðvaldsins hrundi og þjóðinni var sendur reikningurinn hefur þjóðin kallað á breytingar, úrbætur og umfram allt réttlæti. Sjálfstæðisflokkurinn hafnar breytingum, hafnar úrbótum og hafnar réttlæti fyrir aðra en sig og sitt útvalda...

Magnað sjónvarp - ekki ætlað fyrir femínista

Tækið er eingöngu hugsað fyrir klámhunda eins mig!

Á laugardaginn mætast í kjörklefanum alþýðan og sérhagsmunapakkið

Við lýðveldisstofnunina 1944 var núverandi stjórnarskrá, sem í grunninn er sú danska frá 1849 bætt og stagbætt á bót ofan, samþykkt sem stjórnarskrá lýðveldisins. Allir vissu þá og gengu út frá því að sú ráðstöfun væri aðeins til bráðabirgða. Um það voru...

Eingetin möppudýr

Skrýtið hvað „möppudýrunum“ fjölgar hratt, ef þau eru öll kvenkyns. Nema auðvitað að þau séu öll eingetin. En þá erum við komin inn á órannsakanlega vegi. Best að hætta sér ekki inn á þá braut til að lenda ekki upp á kannt við JVJ,...

Hættum að áreita Kringluna

Afskaplega er það dapurt af rekstraraðilum Kringlunnar að rukka góðgerðar- og líknarfélög fyrir afnot af smá gólfplássi í þágu góðs málefnis. Maður hefði haldið að óreyndu að eigendur Kringlunnar hefðu þá reisn og þann metnað að seilast ekki með krumlu...

Menn hafa fengið Fálkaorðuna fyrir minna

Það verður ekki lesið annað út úr þessari frétt og yfirlýsingu ríkisendurskoðanda en að ný skýrsla, um sukkið og svínaríið í kringum hið stjarnfræðilega dýra fjárhags og mannauðskerfi ríkisins, verði samin og fyrirfram sé ákveðið að hún verði alls ólík...

Hörð samkeppni eða grímulaust samráð

Bankarnir streða við að telja fólki trú um að á milli þeirra ríki hatröm samkeppni og að þar sé hvergi gefið eftir. Bankarnir munu eflaust halda því fram að þessi hraðbanka gjaldtaka sé dæmi um samkeppnina og að það sé alger tilviljun að bankarnir hafi...

Ólíkt höfumst við að

Í Indónesíu hefur flugmaður verið rekinn fyrir þau mistök að lenda flugvél sinni á „röngum“ flugvelli, 12 kílómetrum frá „réttum“ flugvelli og áfangastað farþeganna. Íslendingar skilja tæplega þessa hörku því hér virðist hópur...

Þetta er auðvitað alger "bilun"...

...eða þannig! Þetta er magnað en að manni setur hroll. Þarf að segja meira!

Ríkisstjórnin getur ekki treyst á þessa Marshallaðstoð

Um leið og Róbert Marshall yfirgaf Samfylkinguna féll ríkisstjórnin. Að halda annað er dómgreindarskortur. Hnífsstunga Róberts í bak Samfylkingarinnar skrifaði dánarvottorð stjórnarinnar, aðeins dagsetninguna vantar. Yfirlýsing Róberts um stuðning við...

Af góðum heimsóknum - og miður góðum

Núna í vikunni fékk ég góða og sérlega ánægjulega heimsókn. Þar bar að garði bloggvin minn svarthamar, Hvergerðinginn Óskar Helga Helgason. Við Óskar erum fráleitt sammála um alla hluti en bloggvinátta okkar og heimsókn hans og viðræður yfir kaffibolla...

Skemmtilegt leiftur frá liðinni tíð

Allir, sem eru komnir á minn aldur, muna eftir „vegalöggunni“ sem var „að sunnan“ og því talin hálfgerð aðskotadýr á landsbyggðinni og af mörgum litin hornauga. Það fennir ótrúlega fljótt yfir liðna tíð. Ég var nánast búinn að...

Eftir hverju dansa glæpa limirnir, ef ekki höfðinu?

Tarfurinn, Víðir Þorgeirsson, foringi glæpasamtakana Outlaws er laus úr haldi eftir að dómari hafnaði kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald. Það hlýtur að vekja upp spurningar, eftir stórtækar aðgerðir lögreglu gegn glæpasamtökunum, hvar eiturlyf, gambri,...

Til hamingju með daginn Jóhanna

Til hamingju með daginn Jóhanna Sigurðardóttir, hafðu þökk fyrir störf þín í þágu lands og þjóðar. Lifðu drekktu og dansaðu á ævikvöldinu. Vonandi auðnast mér að árna þér heilla á aldarafmælinu.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband