Mulningur 75 - Þegar öll sund virðast lokuð...
28.2.2013 | 13:25
Mulningur | Breytt s.d. kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sjálfhverfa liðið
24.2.2013 | 11:42
Ályktunin sem samþykkt var í gær á landsfundi Sjálfstæðisflokksins -að öll lagasetning skuli taka mið af kristnum gildum þegar það á við - mun vera brot á 64. gr. Stjórnarskrárinnar.
Sjallarnir kunna ekki Stjórnarskránna, sem þeir vilja helst ekki breyta, betur en þetta. Svona er þá öll virðingin fyrir henni.
Þetta styður raunar þá skoðun - að Sjálfstæðismenn séu upp til hópa svo sjálfhverfir að það sé þeim eðlislægt að líta á landsfund flokksins sem yfirþjóðlegt vald.
Ég hef alltaf litið svo á að þegar talað er um svokölluð kristin gildi þá séu menn að tala um almennt siðferði í samskiptum manna á milli, siðferði á ekki að þurfa tengingu við nein trúarbrögð.
Það er skiljanlegt að landsfundinum þyki nauðsynlegt að hnýta þegar það á við - aftan við ályktun um almennt siðferði, svo ekki verði farið um of á skjön við hugmyndafræði íhaldsins.
![]() |
Stjórnmálaályktanir teknar fyrir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mulningur # 74 - Megrunin
22.2.2013 | 22:03
Ég var að byrja í nýju megrunarprógrammi og er búinn að fara tvisvar. Þræl virkar.
Vinstri smellið á myndina til að stækka hana og svo aftur til að stækka hana meira.
Mulningur | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bjarni Ben í ræsið
22.2.2013 | 15:23
Það er óhætt að segja að kjósendur hafi hreinlega fleygt Bjarna Benediktssyni for- manni Sjálfstæðisflokksins í ræsið, samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR um vin- sældir forystufólks í stjórn- málum.
Samkvæmt könnunni bera Sjálf- stæðismenn sjálfir afgerandi lítið traust til síns formanns, gjörólíkt afstöðu kjósenda annarra flokka til þeirra forystumanna. Aðeins 14,6% allra kjósenda segjast treysta Bjarna vel.
Ég óska Sjálfstæðismönnum til hamingju með Bjarna, þeir eiga hann svo sannarlega skilið.
![]() |
58,6% treysta Ólafi Ragnari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Draumur litlu þúfunnar
20.2.2013 | 21:39
Eflaust er Þór Saari, eðli máls samkvæmt, heillaður af máltækinu um litlu þúfuna og hlassið. Kannski dreymir hann um að verða litla þústin sem veltir stóra hlassinu um, einum metra frá endamarkinu.
Hvað gengur Þór eiginlega til með þessu frumhlaupi, vitandi að með því eyðileggur hann líklegast framgang stjórnarskrármálsins, sem hefur verið hans hjartans mál að eigin sögn?
Þetta gerir Þór öllum að óvörum korteri fyrir þinglok. Margir munu eflaust velta fyrir sér hvort Þór telji sig vera að skapa sér nafn í sögunni með þessum fíflalátum, eða hvort honum hafi hreinlega borist nægjanleg örvun frá hagsmunaaðilum fyrir þennan greiða?
En hvað sem veldur þessum kjánaskap Þórs Saari, verður hann í fyllingu tímans sennilega helst þekktur sem litla óþekkta þúfan sem vildi verða fræg en valt í staðin um eigin kjánaskap.
![]() |
Líf ríkisstjórnar hangir á bláþræði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Margnota gjafir
19.2.2013 | 11:30
Þessi efnisstuldur frá Golfklúbbi Sandgerðis er undarlegt mál. Klúbbnum er gefið byggingarefni og því er í framhaldinu komið fyrir í geymslu klúbbsins. Að nokkrum tíma liðnum er því síðan stolið úr geymslunni.
En þegar í ljós kemur að gefandinn, fyrri eigandi efnisins, ásældist efnið á ný og sótti það aftur í geymslu klúbbsins án þess að tala við kóng eða prest, þá er verknaðurinn ekki lengur metinn sem þjófnaður. Gefandinn var bara að endurheimta gjöfina! Eðlilegasti hlutur í heimi.
Gjafir eru merkilegt nokk ekki eign þiggjandans.
Skilanefndir föllnu bankanna kætast örugglega yfir þessari nýju skilgreiningu á eignarhaldi. Þær geta í framhaldinu sótt, jafnvel í skjóli myrkurs, allar þær gjafir sem föllnu bankarnir jusu út hægri vinstri til vinsælda- og velvildarkaupa á þeirra velmektartíma.
Þetta er líka afar hentugt fyrir þá sem eru sérlega gjafsárir, þetta opnar möguleika á að margnýta hverja gjöf. Ekki þarf annað en að hnupla gjöfunum aftur jafnharðan og endurgefa. Það er víst ekki þjófnaður, vel að merkja.
Þetta kemur sér einkar vel í fermingagjafabrjálæðinu framundan. Það verður hægt, jafnvel ár eftir ár, að leysa öll gjafaútlát með einu og sömu gjöfinni.
![]() |
Gefanda snérist hugur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þvílíkt bull og vitleysa!
18.2.2013 | 11:26
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Of flókið fyrir mig
15.2.2013 | 15:15
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Heimsendaspádómasmiðir misstu af gullnu tækifæri
15.2.2013 | 13:26
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Er eingöngu hrossakjöt notað í kjötsvindlið?
12.2.2013 | 17:10
Geta konur, ólíkt körlum, gert margt í einu?
12.2.2013 | 12:42
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Enn er von til að páfinn ljúki sinni síðustu starfsskyldu
12.2.2013 | 10:04
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 10:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vá, hugsið ykkur! - Nýju fötin prinsessunnar
11.2.2013 | 22:43
Fréttir | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hugsum aðeins út fyrir kassann
10.2.2013 | 19:05
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 19:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þá er það ljóst....
8.2.2013 | 20:24
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Dagsskipun flokksins er: Öllu skal fórnað fyrir vafninginn og hans spillta lið (lesist - pakk)
8.2.2013 | 18:59
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Vonandi
6.2.2013 | 21:33
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Segið mér þennan aftur
5.2.2013 | 20:37
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 20:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Rangur misskilningur?
4.2.2013 | 13:05
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eiga konur að vera jafnari en karlar?
3.2.2013 | 13:45
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)