Hvernig er hægt að handleika það sem ekki er til?

Er það ekki rökvilla að tala um að handbært fé sé neikvætt? Hvernig getur fé sem er ekki til verið handbært?

 
mbl.is Handbært fé neikvætt um 33,7 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

IBM Romney

mitt_planeMitt Romney, "maðurinn" sem keppir um Obama um forsetembættið í Banda- ríkjunum og tæplega hálf þjóðin virðist ætla að kjósa, skilur ekkert í því af hverju ekki er hægt að opna gluggana á flugvélum í flugi, vilji farþegarnir anda að sér hreinu lofti.

IBM áformar að nefna næstu ofurtölvu sína eftir gáfnaljósinu.

  
mbl.is Skildi ekki hvers vegna ekki mátti opna glugga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar á að draga línuna Jón Valur Jensson - Við hvaða aldur nemenda mega kennarar byrja að riðlast á þeim?

Það hefur verið í fréttum undanfarið að breska lögreglan leitar að 15 ára enskri stúlku sem hljópst að heiman og til Frakklands með þrítugum kennara sínum.

Jón Valur Jensson guðfræðingur bloggar um málið skilur ekkert í þessu uppistandi út af engu og telur „ástarsamband“  15 ára stúlku og þrítugs kennara hennar, sem enn er unglingur að hans mati, hið besta mál og réttlætir það með fimm aldagömlu barnaníðingsmáli íslensku.

Jón Valur telur það vera sósíaldemókrataískt vandamál og úrkynjun að sjá ekki það fallega í svona „ástarsamböndum“. Jón þessi hefur líka reynt að gera lítið úr barnaníðingsmálum í hans kirkjudeild, sem tröllriðið hafa fréttum undanfarin ár.

Hvar á, hr. Jón Valur guðfræðingur, að draga línuna í kynferðissambandi nemenda og kennara? Við 13 ár, við 11 ár eða jafnvel við forskólaaldur? Við hvaða aldur hættir slíkt samband að vera „fallegt ástarsamband“ og verður eitthvað annað?

Þú ert ekki í lagi maður, fjarri því!

*Þessi færsla er skrifuð hér sem athugasemd við þessa færslu Jóns, því mér er meinað að gera athugasemdir á bloggi Jóns Vals, auk þess sem hann fjarlægir miskunnarlaust allar athugasemdir sem eru honum ekki að skapi.*

  


Litli ríkisendurskoðandinn!

Kastljós var með frábæra umfjöllun um mál sem virðist hafa alla burði til að vera hneykslismál af stærri sortinni.  Ríkisendurskoðun virðist, ef rétt reynist, þjóna tveimur herrum.

Það eina sem ríkisendurskoðandi lét hafa eftir sér um þetta mál var að auðvitað væri þetta allt forvera hans að kenna. Svo harmaði hann auðvitað, ekki slóðaskap og vanrækslu Ríkisendurskoðunar, heldur að upp um „glæpinn“ hafi komist.

Nú verður allt kapp lagt á hjá þeim sem eiga sitt undir í þessu máli að gera litla ríkiendurskoðandann, sem lak málinu í Kastljósið, að skúrki málsins. Sóun milljarða af almannafé verður gert að algeru aukaatriði.


mbl.is Trúnaðarskjali lekið til Kastljóss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aflúsun

Íraskur „flóttamaður“  sem kom hingað í hælisleit s.l. haust, eftir synjun um hæli í Noregi, var fluttur úr landi til  Noregs í morgun. Íslensk  yfirvöld komust að sömu niðurstöðu og þau norsku að ekki væri forsenda fyrir hælisveitingu á grundvelli sögu mannsins. En maðurinn segist ofsóttur í heimalandinu vegna starfa hans fyrir Bandaríska herinn!

Þúsundir er ekki tugþúsundir Íraka hafa starfað fyrir hernámsliðið í Írak. Eru þeir allir ofsóttir og á flótta? Á þá ekki að bjóða þá alla velkomna til Íslands?

Lögmaður mannsins gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir brottvísunina og líka fyrir hvað „langan tíma“  það tók að afgreiða málið. Lögmaðurinn hefur þá væntanlega viljað fá brottvísunina framkvæmda fyrr svo skjólstæðingur hans kæmist sem fyrst heim í það helvíti sem sagt er bíða hans.

Ja, það er vandlifað!

 


mbl.is Segir öryggi flóttamanns ótryggt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmundur Davíð er orðin fullsköpuð Framsóknarmaddama

Formaður Framsóknarflokksins er ekki öruggari með sig og stefnu síns flokks en svo að hann telur vænlegast, til að tryggja sjálfan sig, að hverfa frá ótryggu þingsæti sínu í Reykjavík og bjóða sig fram í N-Austurkjördæmi, hvar Framsókn á enn örugg þingsæti að öllu óbreyttu.

Sigmundur Davíð hefur þar með staðfest að hann hefur að fullu aðlagast áratugalöngum hugsunarhætti Framsóknarmanna. Sem er að tryggja fyrst og fremst, með öllum ráðum, sína eigin hagsmuni, þá flokksins og síðast þjóðarinnar, fari þeir hagsmunirnir ekki saman.

Velkominn heim í heiðardalinn Sigmundur.


mbl.is Birkir Jón hættir á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gylfi er með þetta að venju - eða þannig.

Það gildir einu hver efnahagsvandinn hefur verið á Íslandi síðan 1918, eina efnahagsúrræðið sem beitt hefur verið er gengisfelling á gengisfellingu ofan. Verði ekkert af upptöku evru eða annars erlends gjaldmiðils, er fastgengi Íslensku krónunnar engin...

Skolað út úr Framsókn

Jónína detoxdrottning Íslands ætlar í framboð fyrir Framsóknarflokkinn, vilji flokkurinn nýta þekkingu hennar og krafta. Jónína segist ekki hafa í hyggju að fara í neinn leðjuslag í sínu framboði. En vandséð er hvernig Jónína hyggst detoxa...

Tækjaátrúnaður

Það er stöðugt vaxandi að fólk standi slefandi í löngum biðröðum við raftækjaverslanir, jafnvel dögum saman, eftir að koma höndum yfir það nýjasta í tæknibúnaði hverskonar og þar eru símar og annar samskiptabúnaður hvað eftirsóttast. Enginn þykir maður...

Nektarmynd af Kate Middleton á brúkaupsdaginn

Þvílíkur hamagangur út af einu pari af brjóstum sem eru varla umtalsverð, ef marka má myndir af hennar hátign fullklæddri. Kate blessunin mátti auðvitað vita að þegar hún gekk í eina sæng með einhverri úrkynjuðustu og óþörfustu fjölskyldu heims, yrði hún...

Yndislegt

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Teit Atlason af stefnu og skaðabóta kröfu Gunnlaugs Sigmundssonar. Dómurinn fellst ekki á uppgerðarvandlætingu Gunnlaugs og skýringar hans, hvernig hann „eignaðist“ Kögun. Teitur og aðrir, sem hafa stigið...

Hvar eru landvættir moggabloggsins?

Þegar þetta er skrifað er þessi frétt um Sædrekann orðin tveggja og hálfs tíma gömul og enn hafa engin samsæriskenningablogg komið um „augljós“ tengsl heimsóknar Sædrekans og hugsanlegrar leigu á smá spildu úr landi Grímstaða. Svo ekki sé...

Slappt viðskiptavit

Þjófnaður á miklu magni af málningu að nýafstaðinni gleðigöngu er undarlegur. Ef þjófarnir væru sannir bissnismenn hefðu þeir hnupplað málningunni fyrir gleðigönguna þegar eftirspurn eftir málningu er í sögulegu hámarki á Íslandi, þegar hálf þjóðin,...

Glæpur í matinn

Það er afskaplega skynsamlegt að haga veiðum á hrefnu eftir eftirspurn og raunar ekki forsenda fyrir öðru. Þeir sem ekki geta unnt öðrum að neyta hrefnukjöts og kalla það jafnvel glæpsamlegt, virða ekki nein rök og una sér ekki hvíldar í áróðri sínum...

Að hengja bakara fyrir bankamann

David Walker, nýr stjórnarformaður Barclays bankans breska, telur að upptaka þjónustugjalda og gjaldtöku allskonar í bankakerfinu þarlendis muni leiða til heilbrigðari viðskiptahátta bankanna. Það mætti benda þessum Walker á, að þjónustugjöld og önnur...

Hvar í þjóðfélagsstiganum hætta skattsvik að vera afbrot?

Skattgreiðslur forsetafrúarinnar hafa verið í umræðunni í sumum fjölmiðlum undanfarið, þó aðrir reyni hvað þeir geta að þegja það hneyksli í hel. Fremstir í þeirri þöggun fara pólitískir andstæðingar forsetans, sem þó létu sig hafa það að kjósa hann í...

Faðernið sannað

Þá er það loks á hreinu að AMX.is, saurugasti vefmiðill landsins, er, sem margan hefur grunað, skilgetið afkvæmi Morgunblaðsins! Samkvæmt frétt á Vísir.is , en eðlilega ekki á mbl.is.

Einstakt afrek

Þessi auglýsing er tær snilld. Það þarf snillinga og kraftaverkamenn til að gera efni, með þátttöku Árna Johnsen, skemmtilegt. Það hefur aldrei tekist áður og næsta vonlítið að muni gerast aftur.

Hversu langt á listasnobbið að ganga?

Helstu rökin fyrir verndun lands fyrir framkvæmdum er nytsemi landsins til annarra nota eða hreinlega fegurð þess. En nú ber nýtt við, íbúar í Garðabæ vilja ekki vegagerð í gegnum úfið apalhraun, ekki vegna fegurðar þess eða annarrar nytsemi fyrir íbúa...

"Vita skaltu, góði minn, að þú ákveður ekki hvar ég kúka"!

„Sonurinn“, hann Bangsi, vakti mig um hálf níu í morgun með því að hamra í mig með trýninu. Ljóst var að hann þurfti að komast út enda komið langt fram yfir okkar venjulega fótaferðatíma. Ég spratt á fætur, snaraði mér í leppana og út með...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband