Hringekja fáránleikans
21.7.2012 | 15:13
Þetta fjöldamorð sýnir og sannar rétt eins og önnur svipuð að vopnalöggjöfin í Bandaríkjunum er í besta falli meingölluð, ef ekki hreinlega galin.
Það sorglega er, og megin vandamálið, að í Bandaríkjunum eru byssur trúarbrögð. Þeir sjá ekki vandann, sjá ekki ógnina í skotvopnum og almennri eign þeirra. Þeir trúa því staðfastlega að eina lausnin til varnar byssuógn séu fleiri byssur, fleiri góðar byssur gegn slæmu byssunum.
Svona fjöldamorð hafa keðjuverkandi áhrif, ekki til hins betra í afstöðu almennings til vopnaeignar, heldur til hins verra. Þetta fjölgar aðeins þeim sem fá sér byssur sér til varnar og þannig fjölgar stöðugt skotvopnum í umferð og jafnframt þeim sem aldrei ættu að fá að höndla skotvopn.
![]() |
Hann er með byssu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Okur, nei rán!
20.7.2012 | 01:42
Þá hafa nýjar íslenskar kartöflur hafið innreið sína í búðir landsmanna með hefðbundnu okri. Verð nýju kartaflnanna er venju samkvæmt ráni líkast, þetta á bilinu 260 til 280 % hærra en á eldri uppskeru.
Svo er ýmsum brögðum beitt til að dylja okrið á nýju uppskerunni, henni er t.a.m. aðeins pakkað í 1 kg pakkningar til að blekkja verðvitund neytenda.
Slíkur kíló poki kostaði í fyrradag 445 kr en í dag 426 kr. 445 kr virðist augljóslega mun hagstæðara verð, við fyrstu sýn, en væri hefðbundin 2ja kg poki verðlagður á tæpar 900 kr.
Hvert rennur þýfið?
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 02:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Átakanlegt átak
19.7.2012 | 23:41
Það er frábært þegar fólk tekur sér tak í eigin heilsu og líferni. En það eru samt ekki margir sem gera jafn stórhuga megrunaráætlun og stórstjarnan Jessica Simpson.
Þegar til slíkra stórverkefna er ráðist þarf auðvitað að ráða til starfa þjálfara, sérhæfðan í þannig stjörnuvandamálum. Það dugir auðvitað ekkert minna þegar menn hafa sett sér þau öfgafullu og ómennsku markmið að losa sig við hvorki meira né minna en heilt pund, og það á aðeins einni viku.
Það gera rúmlega 64 grömm á dag.
Það samsvarar einum góðum viðrekstri hjá meðalmanni og það án leiðsagnar sérstaks þjálfara!
![]() |
Ætlar að losna við hálft kíló á viku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt 20.7.2012 kl. 00:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er dallurinn tómur?
18.7.2012 | 21:28
Það hefði sennilega farið betur hefði Heimdallur haft sama áhuga á að vita, fyrir hrun, hvar átrúnaðargoð þeirra voru staddir og hvað þeir voru að bralla, en það verður víst seint á óskalista Heimdalls.
![]() |
Borgarstjórinn farinn til Noregs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spellvirki Öryrkjabandalagsins
18.7.2012 | 18:57
Ég er fullkomlega sammála kærendum kosninganna um forsendur kærunnar. Núverandi fyrirkomulag við aðstoð þeim til handa sem ekki geta kosið hjálparlaust er gersamlega óviðunandi og því verður að breyta strax.
En ég er gersamlega ósammála þessari aðgerð og tel það gífur- legan ábyrgðarhluta af hálfu Öryggjabandalagsins og beinlínis spellvirki að ætla ganga alla leið og krefjast ógildinga forsetakosninganna á forsendum þessa formgalla. Ekki hvað síst þegar ljóst má vera að ágallalausar kosningar hefðu ekki skilað öðrum úrslitum. Fráleitt er að styðja slíka rökleysu.
Umræðan um hnökra nýgengina kosninganna hefur klárlega orsakað þann þrýsting á Alþingi að breyta þessu misrétti fyrir næstu kosningar. Kæra Öryrkjabandalagsins er því að öllum líkindum fullkomið vindhögg og því ekkert annað en hreinræktað spellvirki, verði hún til þess að ógilda kosningarnar.
![]() |
Vilja ógilda forsetakosningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Allt er víst breytingum undirorpið...
17.7.2012 | 23:51
Svona er hans heilagur hræsnarinn Snorri Óskarsson.
16.7.2012 | 21:37
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (116)
Í sjálfu sér lítið skref, en risastökk á heildina litið
15.7.2012 | 15:30
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Alger gullmoli
12.7.2012 | 22:02
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þarf að hugsa þetta mál frekar?
11.7.2012 | 18:23
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þessir misbrestir...
10.7.2012 | 07:10
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Án efa fer megnið af þessu fé...
8.7.2012 | 13:30
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Munurinn á ísbirni og sel
6.7.2012 | 12:50
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Lygamerðir
5.7.2012 | 21:20
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 21:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vonandi var þetta missýn
4.7.2012 | 20:42
Fréttir | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Hvað er að tarna?
3.7.2012 | 22:41
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Skítlega eðlið
3.7.2012 | 20:57
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Það er skammgóður vermir að pissa í skóinn sinn
1.7.2012 | 11:40
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Villandi fréttaflutningur
27.6.2012 | 10:46
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 10:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)