Risvandamál
25.6.2012 | 23:03
Þeirri gleði verður vart með orðum lýst að Kim Kardashian skuli loks hafa hlotið náð fyrir augum Beyoncé og sú síðarnefnda tekið þá fyrri í sátt og sinn umgangshóp. Þröngsýni og kali B í garð K hefur valdið verulegum óróleika á stjörnustórmarkaðinum.
Allt frá því einhver reið einhverju sem hann eða hún átti ekki að serða, hefur þetta mál valdið verulegu falli á stjörnugengisvísitölunni, sem aftur hefur valdið keðjuverkandi falli risvísitölunnar í Hollywood.
En núna þegar Beyoncé brosir opinberlega til Kim með langrifunni er von til að meiri reisn færist aftur yfir Hollýhæðir og muni breiðast út sem eldur í sinu.
Það er von manna á framhjáhaldsmarkaðnum í Hollý að ástandið lagist sem fyrst, í það minnsta þannig að þeir sem ekki ná að eðla sig með næsta manni eða konu fyrir hádegi geti í það minnsta náð að ljúka því fyrir seinna kaffi.
![]() |
Loksins tekin í sátt af Beyoncé |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Horfa álitsgjafar viljandi í gegnum kíkinn með blinda auganu?
23.6.2012 | 12:26
Mér leikmanninum finnst þessi neikvæðu viðbrögð Möppudýrafræðinganna varðandi hugmyndir um flutninga á hreindýrum til Vestfjarða lykta illa af fordómum og forneskjulegri íhaldssemi. Möppudýrafræðingarnir bera helst fyrir sig hugsanlega hættu á útbreiðslu sjúkdóma að austan og vestur verði af flutningum hreindýra vestur og hafna því alfarið hugmyndinni. Án þess að styðja þá skoðun með haldbærum rökum og tilvísun í rannsóknir.
Það er ljóst að ekki má, samkvæmt núgildandi lögum, flytja fé á fæti yfir svokallaðar sauðfjárveikivarnargirðingar, þó er það gert í ómældum mæli á hverju hausti, þegar fé er flutt landshorna á milli til slátrunar.
Eru einhverjar sóttvarnar reglur í gangi milli landshluta hvað varðar veiðiútbúnað? Þarf áhugaveiðimaður að vestan, t.d. sauðfjárbóndi úr Djúpinu, sem fer austur og skýtur hreindýr, gerir að því og tekur heim, að ganga í gegnum eitthvert sóttvarnarferli með dýrið, föt sín og græjur?
Ef ekki, hafa sjúkdómarök fræðingana gegn flutningi hreindýra til Vestfjarða fallið um sjálf sig.
Ef hreindýr eiga ekki heima á Vestfjörðum af gróðurverndarsjónamiðum, eiga þau þá eitthvað frekar heima á Austfjörðum af sömu ástæðum? Ber þá ekki að fjarlægja þau þaðan af sömu gróður verndarsjónarmiðum?
![]() |
Vilja ekki hreindýr á Vestfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 12:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Anna Kristín laug
22.6.2012 | 10:40
Anna Kristín Ólafsdóttir höfðaði mál á grundvelli jafnréttislaga, þegar henni þótti á sér brotið, þegar hún var ekki þeim lögum samkvæmt tekin fram yfir hæfari eða jafn hæfa umsækjendur. Anna hefur á grundvelli þessara forréttindalaga unnið sitt mál, eðlilega, því að lögum skal fara.
En svo kemur Anna Kristín fram í fjölmiðlum og lýsir hróðug yfir sigri, belgir sig sem hæna á haug, og segir Jóhönnu Sigurðardóttur ljúga því að ráðuneytið hafi reynt að fara sáttaleiðina. Anna segir að Jóhanna og ríkið hafi aldrei boðið sættir eða reynt að fara sáttaleiðina.
Ekki er að sökum að spyrja, bloggheimur reis með það sama upp á afturlappirnar og hellir yfir forsætisráðherrann óbótum og skömmum fyrir hina meintu lygi og spara ekki stóru orðin og fúkyrðin.
Nú hefur dúkkað upp bréf frá ríkislögmanni til lögmanns Önnu hvar óskað er eftir sáttafundi til að finna lausn og ná sáttum.
Bréfið sannar að Anna Kristín laug. Nú hljóta þessir sömu bloggarar, sem ekki þola lygi og misgjörðir, að segja Önnu Kristínu skoðun sína á henni umbúðalaust!
Vonandi lærir Jóhanna Sigurðardóttir og aðrir femínistar það á þessu rugli öllu að lagasetning sem veitir einum forgang umfram aðra með þeim rökum að slíkt auki jöfnuð, getur ekki annað en borið í sér feigðina.
![]() |
Bauð fram sátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hjálpum þeim, hjálpum þeim!
21.6.2012 | 12:16
Er ekki lausnin á þessu skemmtilega vandamáli, og fleiri vandamálum sem þessum mönnum fylgja, hreinlega sú að láta þeim takast að smygla sér til Ameríku og slá þannig margar flugur í einu höggi?
![]() |
Sami hópur ítrekað staðinn að verki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 12:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Takk Eiríkur Jónsson, þú hjálpaðir mér, og vonandi sem flestum öðrum, að taka ákvörðun!
21.6.2012 | 00:13
Ég hef aldrei áður þakkað skítseyði fyrir þess framlag, en allt er einu sinni fyrst. Takk Eiríkur Jónsson fyrir þitt framlag.
Ég hef áður tjáð hug minn um þann skítmokstur sem stundaður er í forsetakosningunum og þá aðallega af meintum samstuðnings félögum mínum við Ólaf Ragnar. Skítkastinu er eingöngu beint gegn Þóru, þar sem hún er helst talin ógna Ólafi.
Menn draga ekki af sér, tilgangurinn er látinn helga meðalið og eins þykkt smurt og framast er kostur. Hamrað er látlaust á lyginni og hálfsannleikanum uns þau hljóma sem sannleikurinn eini.
Núna í kvöld horfði ég á eitthvað sem átti vera sjónvarpsþáttur á "sjónvarpi Eiríks Jónssonar", þátt í sama dúr og þættir með sama manni fyrir margt löngu sem nutu nokkra vinsælda um hríð en ofbuðu að lokum fólki fyrir lágkúru og ljótleika. Eiríkur reynir þarna að höggva í sama hnérunn og fer beint í sorann.
Eiríkur dregur fram fyrrverandi sambýliskonu Svavars, eiginmanns Þóru, kynnir hana til leiks sem SPÁMIÐIL (hvað sem það nú er) til að spá til um úrslit kosninganna. (SJÁ HÉR)
Síðan snýst "spádómurinn" þeirrar fyrrverandi aðallega um kalann sem miðillinn virðist bera í brjósti gegn fyrrverandi sambýlismanni og barnsföður eftir þeirra misheppnaða samband. Auk þess sem "spádómurinn" upplýsir helst hvað frænka Eiríks eigi mikla möguleika í kosningunum.
Er þetta það sem móðirin matar barnið sitt á um föður þess? Þvílík móðir, geri hún það.
Það er athyglisvert að þessi magnaði miðill skuli ekki hafa verið heppnari með eigið líf, svona vel sjáandi inn í framtíðina.
Hér tók steininn úr í þessum hatursáróðri gegn Þóru. Mér ofbýður, ég snýst henni til varnar og geng í hennar lið. Rétt eins og ég gerði 1996 þegar árásirnar á Ólaf Ragnar náðu hámarki.
![]() |
Gegn forseta í þriðja sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Fullkomin fimma?
20.6.2012 | 20:33
Það er kona í embætti forsætisráðherra, það er kona í forsæti Alþingis, það er kona á leið í embætti biskups, það er kona á leið í embætti vígslubiskups.
Það yrði svo saga til næsta bæjar, sendi þjóðin konu til Bessastaða.
![]() |
Solveig Lára vígslubiskup á Hólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Launaleiðrétting, en hvernig?
19.6.2012 | 15:51
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Alfreð Gíslason sem næsta landliðsþjálfara!
9.6.2012 | 23:17
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
NATO ætlar að hætta drápum á óbreyttum borgurum!
9.6.2012 | 20:50
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þingflokksformaður LÍÚ
9.6.2012 | 15:52
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Baráttan um Bessastaði
8.6.2012 | 22:09
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Góð frammistaða RUV
7.6.2012 | 21:17
Gefum öðrum líf, eftir lífið
7.6.2012 | 19:45
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hvernig sigla skip sem eru í slipp?
6.6.2012 | 14:37
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Skítlegt eðli
5.6.2012 | 15:36
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 16:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Auglýsingar dulbúnar sem fréttir
5.6.2012 | 13:06
Fréttir | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Heyrir LÍÚ í sjálfu sér?
4.6.2012 | 18:37
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 18:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
LÍÚ lygur og Sjómannasamband Íslands þegir þunnu hljóði
4.6.2012 | 15:39
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Harmar hlutinn sinn faktorinn
4.6.2012 | 13:44
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Skandall
3.6.2012 | 22:57