Þessir misbrestir...

...og gallar í kerfinu eru svo augljósir  og sláandi að jafnvel kerfisrisaeðlan Björn Bjarnason sér þá og fær ekki orða bundist.

 Þarf þá frekari vitna við að breytinga sé þörf á þessu verklagi, sem nefndur Björn hefur mjög líklega átt sinn þátt í að skapa? 


mbl.is „Eitthvað bogið við kerfið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Án efa fer megnið af þessu fé...

..., 16 milljörðum dollara "þróunaraðstoðar" alþjóðasamfélagsins til Afganistan, í að styrkja framleiðslu og eflingu helstu útflutningsgreinar afgana,  ópíums, sem er þeirra verðmesti útflutningur.

Það er giska broslegt að það skilyrði er sett fyrir þróunaraðstoðinni að spilltustu stjórnvöld veraldar vinni gegn spillingu!

Fátt virðist meiri gróðrarstíga fyrir spillingu en einmitt afskipti NATO, hvar sem það fyrirbæri drepur niður fæti í heiminum, í nafni friðar og mannúðar.

Talibanar höfðu nánast útrýmt ópíumframleiðalunni í Afganistan áður en NATO taldi rétt að skipta þeim út með hervaldi, af ástæðum sem öllum eru gleymdar núna, til að koma öllu á "rétta braut" aftur.  

Nú blómstarar ópíumframleiðslan í Afganistan sem aldrei fyrr. Hvert fer það eitur? Beint í æðar ungmenna NATO ríkjanna sem sáu ofsjónum yfir "röngum stjórnarherrum" í Afganistan.

Öllu, virðist fórnandi til að „eiga“ vinveitta ríkisstjórn í endaþarmi heimsins, jafnvel heill og hamingju ungmenna eigin landa. Í þeim tilgangi virðast bein fjölda dráp á borgurum fjarlægra landa og óbein dráp á eigin borgurum, ekkert tiltöku mál.

Er eitthvað sjúkara en það?


mbl.is Milljarðar í aðstoð við Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munurinn á ísbirni og sel

Ísbjörn er auðþekkjanlegur á sundi, hann flýtur það vel að öll hrygglengjan auk höfuðsins stendur upp úr vatninu ólík selum þar sem höfuðið eitt sést.

Ítalinn góðglaði sagði í hádegisfréttum að hann þekkti ísbirni frá selum, ljóst er að eitthvað skortir á að sú fullyrðing haldi vatni.

Læt fylgja með myndir af ísbjörnum á sundi, menn geta svo borið þær saman við "ísbjarnarmyndir"  Ítalans.

syndandi ísbjörnsyndandi ísbirnirsyndandi ísbjörn2 
mbl.is Hvítabjörn á sundi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er það, ætlar enginn að krefjast þess að skítseyðinu verði bjargað heim?

Þess verður örugglega ekki langt að bíða að einhver ríði á vaðið og síðan verða allar vælur ræstar og þess krafist að þessum „landsins sóma“ verði bjargað heim og honum forðað frá illum aðbúnaði í Brasilískum fangelsum, sem eru auðvitað ekki mikilsmetandi glæpamönnum Íslenskum bjóðandi.

 

Svona kappa hæfir auðvitað ekkert minna en lúxusdvöl á fimmstjörnu ríkishótelinu á Eyrarbakka, svo honum megi líða sem best á meðan hann upphugsar nýjar leiðir til að flytja inn eitur í æðar íslenskra ungmenna.

 
mbl.is Langur brotaferill Sverris Þórs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lygamerðir

Reynt var að smygla merði inn í landið á Seyðisfirði fyrir hálfum mánuði eða svo. Sú tilraun endaði eðlilega með aftöku marðarins, lögum samkvæmt.

Flest bendir til þess að tveir lyga merðir, Ítalskrar ættar ásamt tveim ungum séu á faraldsfótum sínum um landið, breiðandi út lygar og gróusögur, hvar sem þeir drepa niður fótum, eins og slíkra mun háttur.

Fróðlegt verður að sjá hvernig lögreglan og tollgæslan tekur á þessum skaðræðis lygamörðum, sem hafa af meinsemi sinni skapað stríðsástand við annars friðsælan Húnaflóann og hvort litið verði, við lausn málsins, til fordæmisins frá Seyðisfirði?


mbl.is Búið að finna Ítalina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi var þetta missýn

Vonandi er um misskilning eða missýn að ræða, þannig að lattelepjandi kaffihúsa bloggarar þurfi ekki að fara enn og aftur af hjörunum yfir felldum ísbirni.


mbl.is Leita að ísbirni á Vatnsnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að tarna?

Trúði því einhver annar en Lilja að henni væri nóg að skipta um nafn og kennitölu á framboði sínu til að gamla eðlið og innrætið þekktist ekki og henni yrði tekið sem nýrri og ferskri vöru?

Skítlega eðlið

Vaxandi stuðningur við ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna kemur ekki á óvart. Það streyma inn upplýsingar og hagtölur sem segja frá afgerandi bata í efnahag landsins, minnkandi atvinnuleysi og auknum fjárfestingum. Þetta eru upplýsingar og tölur...

Það er skammgóður vermir að pissa í skóinn sinn

Ég óska forsetanum til hamingju með sigurinn. Ég óska líka Hannesi Hólmsteini og Sjálfstæðisflokknum til hamingju með sigur þeirra frambjóðanda. Sjálfstæðisflokkurinn hefur allt frá lýðveldisstofnunni, rembst eins og rjúpan við staurinn, að hlutast til...

Villandi fréttaflutningur

Ég tel það vera afar villandi ef ekki beinlínis hreina rangfærslu að fullyrða að samheitalyf séu gölluð vara eins og gert er í þessari frétt. Samheitalyf hafa nákvæmlega sömu virkni og frumlyfin, aðeins framleiðandinn og nafnið er annað og svo auðvitað...

Risvandamál

Þeirri gleði verður vart með orðum lýst að Kim Kardashian skuli loks hafa hlotið náð fyrir augum Beyoncé og sú síðarnefnda tekið þá fyrri í sátt og sinn umgangshóp. Þröngsýni og kali B í garð K hefur valdið verulegum óróleika á stjörnustórmarkaðinum....

Horfa álitsgjafar viljandi í gegnum kíkinn með blinda auganu?

Mér leikmanninum finnst þessi neikvæðu viðbrögð Möppudýrafræðinganna varðandi hugmyndir um flutninga á hreindýrum til Vestfjarða lykta illa af fordómum og forneskjulegri íhaldssemi. Möppudýrafræðingarnir bera helst fyrir sig hugsanlega hættu á útbreiðslu...

Anna Kristín laug

Anna Kristín Ólafsdóttir höfðaði mál á grundvelli jafnréttislaga, þegar henni þótti á sér brotið, þegar hún var ekki þeim lögum samkvæmt tekin fram yfir hæfari eða jafn hæfa umsækjendur. Anna hefur á grundvelli þessara forréttindalaga unnið sitt mál,...

Hjálpum þeim, hjálpum þeim!

Er ekki lausnin á þessu skemmtilega vandamáli, og fleiri vandamálum sem þessum mönnum fylgja, hreinlega sú að láta þeim „takast“ að smygla sér til Ameríku og slá þannig margar flugur í einu höggi?

Takk Eiríkur Jónsson, þú hjálpaðir mér, og vonandi sem flestum öðrum, að taka ákvörðun!

Ég hef aldrei áður þakkað skítseyði fyrir þess framlag, en allt er einu sinni fyrst. Takk Eiríkur Jónsson fyrir þitt framlag. Ég hef áður tjáð hug minn um þann skítmokstur sem stundaður er í forsetakosningunum og þá aðallega af meintum samstuðnings...

Fullkomin fimma?

Það er kona í embætti forsætisráðherra, það er kona í forsæti Alþingis, það er kona á leið í embætti biskups, það er kona á leið í embætti vígslubiskups. Það yrði svo saga til næsta bæjar, sendi þjóðin konu til

Launaleiðrétting, en hvernig?

Innanríkisráðuneytið hefur „leiðrétt“ svokallaðan 2,5% „óútskýrðan kynbundin launamun“ í ráðuneytinu. Ráðuneytið þarf að úrskýra með hvaða hætti þessi svokallaða launa „leiðrétting“ var framkvæmd og forsendur hennar....

Alfreð Gíslason sem næsta landliðsþjálfara!

Guðmundur Guðmundsson hefur því miður ákveðið að hætta sem þjálfari handboltalandsliðsins eftir Ólympíuleikanna í sumar. Guðmundur hefur staðið sig með afbrigðum vel og skilað landsliðinu lengra en bjartsýnustu menn þorðu að vona. En hans ákvörðun ber að...

NATO ætlar að hætta drápum á óbreyttum borgurum!

NATO hefur samþykkt að hætta loftárásum á íbúðahverfi og drápum á óbreyttum borgurum í Afganistan. Ekkert minna, slík eðalmennska kallar fram tár á hvarmi hjá jafn viðkvæmum manni og mér. Þetta er sennilega skynsam- legasta ákvörðun sem NATO hefur tekið...

Þingflokksformaður LÍÚ

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingsflokksformaður LÍÚ reif sig niður í klof í þinginu í fyrr dag og upp aftur, yfir þeirri ósvífni að þingmenn þyrftu að sitja þingfundi og væru þannig hindraðir í því að sinna mun mikilvægari málum, t.a.m. hanastélspartí...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband