Við munum víst vinna Eurovision - enn einn ganginn.

Jæja þá er sigurinn í Júróvisjón aðeins formsatriði – enn einn ganginn.

Æ-iii hlífið okkur við sigurgrobbi í þetta sinn. Þó framlag Íslands sé flutt af mikilli fagmennsku þá á lagið enga innistöðu fyrir sigri.

Ég efast raunar stórlega um að það nái inn í aðalkeppnina á laugardaginn. Því miður.


mbl.is Ísland gæti haldið Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Formaður Stéttarfélags Vesturlands gagnrýnir samninga sem skiluðu fullu húsi.

Fráleit er sú fullyrðing formanns Stéttarfélags Vesturlands að samningar nokkurra verkalýðsfélaga við einstaka atvinnurekendur hafi veikt samningsstöðu verklýðshreyfingarinnar. Erfitt er að ímynda sér að „órofin samstaða“ skili „fullu húsi“, þegar upp verður staðið, eins og hinir gagnrýndu samningar gerðu. Nema þá helst fyrir tilverknað þeirra samninga.

Ef eitthvað veiktist, var það samstaða og styrkur atvinnurekenda. Samtök atvinnulífsins standa frammi fyrir því að í gerðum samningum var gengið að kröfum verkalýðsfélagana.

Undarleg er sú aðferðarfræði formannsins að gagnrýna "skort" á  samstöðu, með því að kljúfa sig svo frá samstöðunni.

Þetta minnir á tilraunir til að sameina margklofna vinstri flokkanna á árum áður, þar sem unnið var aðallega eftir þeirri hugmyndafræði að sameining tækist aðeins með því að kljúfa enn frekar.


mbl.is „Kepptust við að semja út og suður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki eðlilegt hvað sumir eru heppnir

Það er ekki nóg með að litla prinsessan enska sé svo lánsöm að verða á framfæri þjóðarinnar til æviloka, fyrir það eitt að hafa komið úr pung pabba síns - heldur á hún líka sama afmælisdag og David Beckham.

Vá! Þetta verður ekki toppað.


mbl.is Á sama afmælisdag og Beckham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annarra manna fé

Kristján Loftsson vill gjarnan fá fé lífeyrissjóðanna inn í sín fyrirtæki en vill ekki að sjóðirnir skipti sér af sínum fjárfestingum. Hann vill með öðrum orðum fá annarra manna fé í sinn áhætturekstur, til ráðstöfunar að eigin geðþótta.

Er líklegt að Kristján Loftsson fjárfesti fúlgur fjár í fyrirtækjum og láti svo öðrum alfarið, án eftirfylgni, um meðferð fjárins og ávöxtun? Held ekki.

Er eðlismunur á fjárfestingum lífeyrissjóða og fjárfestingum Kristjáns Loftssonar? Af hverju ættu lífeyrissjóðir að vera síður áhugasamir um framgang sinna fjárfestinga en Kristján Loftsson?

Kristján nýtir sér að sjálfsögðu afl síns eignarhlutar í fyrirtækjum til að hafa áhrif á stjórnun þeirra og ekkert óeðlilegt við það. Það væri óeðlilegt ef lífeyrissjóðirnir gerðu það ekki það sama.

Hún er alltof ríkjandi í þjóðfélaginu sú undarlega hugsun að vanti einhverstaðar áhættufjármagn þá eigi lífeyrissjóðir landsmanna skilyrðislaust að stökkva til og fjármagna hugmyndir misvitra ævintýramanna.

Það undarlega er að lífeyriseigendur sjálfir taka iðulega undir þetta sjónarmið og gleyma því algerlega að lífeyrissjóðirnir eru ekkert annað en sparifé þeirra sjálfra. Sparifé, sem verður ekki nýtt á ævikvöldinu hafi því verið sóað af Kristjáni Loftssyni eða öðrum fjárfestatröllum.

Hugmynd Kristjáns er að sjálfsögðu sett fram á degi verkalýðsins - til hamingju með daginn!


mbl.is Vill að lífeyrissjóðirnir skipti sér ekki af hlutafélögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni tekur upp hanskann - fyrir sjálfan sig

Það er auðvitað rétt hjá Bjarna Ben að ekki sé hægt með beinum hætti að mæla heiðarleika fólks í skoðanakönnunum. En slík könnun sýnir samt sem áður hvaða tilfinningu fólk hefur fyrir heiðarleika viðkomandi út frá gjörðum hans og athöfnum.

Gjörðir Bjarna, vinnubrögð og verklag skora bara ekki hærra en þetta hjá almenningi. Það ætti Bjarni að taka til alvarlegrar athugunar. Fýluleg viðbrögð Bjarna benda hinsvegar til að honum sé skítsama um skoðun almennings.

Bjarni veit af reynslunni að atkvæði flokksmanna skila sér í hús í kosningum, sama hvernig hann og flokkurinn misbjóði almenningi með grímulausri sérhagsmunagæslu fyrir einkavinaklíkur og aðra flokksdindla.

Flokkshollusta kjósenda Sjálfstæðisflokksins er efni í rannsókn, ein og sér. Ég legg til að Hannesi Hólmsteini verði falin sú rannsókn, svo niðurstaðan verði flokknum boðleg. Þ.e.a.s. þegar Hannes hefur lokið við að rannsaka allar sakir af Sjálfstæðisflokkum varðandi hrunið - sem aldrei varð.

 

 


mbl.is Bjarni tekur upp hanskann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hannes Hólmsteinn - rétti maðurinn til að framkalla "rétta" niðurstöðu

Rannsókn Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar á bankahruninu og hlut Sjálfstæðisflokksins í því ferli öllu er jafn líkleg til að leiða sannleikann í ljós og ef Joseph Goebbels hefði verið fenginn, að stríði loknu, til að rannsaka Helförina og aðkomu Nasistaflokksins að henni.

 


mbl.is „Tek ekki þátt í þeim skrípaleik“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smánarleg sekt

„Listamaðurinn“ sem „nauðgaði“ hvernum Strokki með litagjörningi sínum og gerðist þannig brotlegur við náttúruverndarlög segist ekkert skilja í látunum – „hann hafi farið mjög varlega“ við nauðgunina og verið...

Löglegt! - En siðlaust.

Páll Jóhann Pálsson þingmaður Framsóknar vinnur að því hörðum höndum á Alþingi að úthluta sjálfum sér 50 milljónum í formi kvóta til útgerðar eiginkonunnar. Væri Páll sveitarstjórnarmaður, en ekki þingmaður, og úthlutun kvótans væri á höndum...

Fataleysi?

Sennilega hefur ekki verið búið að sauma á Hreiðar og Sigurð nýju grófteinóttu Hraunmani jakkafötin og þeir því orðið að sitja "heima".

"Kuldi er ekkert hættulegur!"

„Kuldi er ekkert hættulegur!“ Segir kokhraustur skjálfandi " sjósundkappinn " , til að ýkja nokkuð eigin getu og þol, auk þess til að fá fleiri til að trúa bullinu, sem hann getur varla, með réttu, trúað sjálfur. Þetta er alveg ný kenning,...

Bað í áfengisanda

"Voru nokk­urra sentí­metra lang­ir nagl­ar, sem eru jafn­an baðaðir í áfengisanda , rekn­ir í gegn­um hend­ur og fæt­ur fólks­ins og það síðan reist upp á trékross..." Þeir á Mogganum eru álíka góðir í Gúglinu og Sveinbjörg...

Skítlegt eðli

Samkvæmt viðhengdri frétt virðast engin takmörk vera á því hversu mikill óþverraháttur og óeðli getur rúmast í einum manni!

Illur bróðir er mörgum óvin verri

Kemur það einhverjum á óvart að Davíð Oddson segi í Reykjavíkurbréfi Moggans, það var ekki ég, ..ekki ég, ...ekki ég og afneiti þannig aðkomu sinni að gjaldþroti Seðlabankans og varpi ábyrgðinni á vin sinn og bandamann, sjálfum sér til bjargar? Nefndi...

Veldur hver á heldur

Gereyðingarárásin á Þýsku borgina Dresden í lok stríðsins hafði nákvæmlega enga hernaðarlega þýðingu.Þá var þegar orðið ljóst að Þjóðverjar höfðu tapað stríðinu. Þeir sem skipulögðu og gáfu fyrirmæli um framkvæmd þessa mesta stríðsglæps seinni...

Stálu þeir brauði úr Bónus?

Greinilegt er að dómskerfið lítur brot bankabófanna mjög alvarlegum augum! Enda er dómurinn yfir þessum ofurkrimmum, forvígismönnum græðginnar og ábyrgðamönnum hrunsins á svipuðu róli og dómar sem felldir hafa verið yfir útigangsmönnum fyrir að hnupla...

Gengur ekki Íhaldsjöfnuðurinn í Kópavogi jafnt yfir alla?

Kona sem vinnur hjá Kópavogsbæ kærði eðlilega launamun á henni og karli í sambærilegu starfi. Kópavogsbær brá við hart og jafnaði launin. En bærinn fór þá fáheyrðu leið, að í stað þess að hækka laun konunnar til jafns við karlinn þá lækkuðu þeir laun...

Aldrei aftur Katar

Það er greinilegt að eitthvað er bogið við dómgæsluna í leikjum Katar á mótinu. Um þverbak keyrði dómgæslan í leik þeirra gegn Pólverjum. Um það verður ekki deilt, slík var hrópleg og grímulaus hlutdrægni dómaranna. Vonlaust er að um tilviljun sé að...

Hræsni andskotans

Þjóðarleiðtogar, sem fyrir hálfum mánuði gengu um götur Parísar til varnar tjáningarfrelsi og mannréttindum, streyma nú til Ríad í Sádí-Arabíu til að votta virðingu sína hinum dauða Abdullah konungi, einhverjum helsta fulltrúa mannréttindabrota og...

Nú eru allir sótraftar á sjó dregnir

Halldór Halldórsson fallkandidat Íhaldsins í Reykjavík leggur til að sveitarfélög lækki útsvarið til að greiða fyrir "hæfilegum" launahækkunum fyrir verkafólk. Talaði þessi "glæsti" fulltrúi Íhaldsins fyrir lækkun útsvars til að greiða fyrir samningum í...

Frægur á Íslandi

Bandarískur hermaður fellur í Afganistan. Fall þessa mans þykir svo merkilegt á Íslandi, umfram aðra fallna „nafnleysingja“ þarlendis að dauði hans verður að sérstakri frétt. Hvað var það sem gerði þennan mann svo merkilegan í augum hérlendra...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband